Fjarlægðu þúsund smápeninga úr maga skjaldböku Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 6. mars 2017 23:06 Smáaurarnir vógu fimm kíló. Bank er á batavegi. vísir/afp
Fjarlægja þurfti tæplega eitt þúsund smápeninga úr maga sæskjaldbökunnar Bank á dögunum. Peningarnir vógu fimm kíló og var Bank komin í bráða lífshættu þegar dýralæknar áttuðu sig á því að ekki var allt með felldu. Taílendingar hafa lengi trúað því að þeir geti öðlast langlífi með því að fleygja klinki í laugar skjaldbaka, þó það séu fyrst og fremst ferðamenn sem stunda þann sið þar í landi. Þannig hafði ferðafólk árum saman kastað smáaurum í sjávarlaug Banks, sem er í bænum Sri Racha í Taílandi. Afleiðingarnar urðu þær að kviðskel skjaldbökunnar brotnaði og mikil sýking myndaðist. Taílenskir fjölmiðlar greindu frá málinu og upphófst í kjölfarið söfnun fyrir skurðaðgerðinni. Fimm skurðlæknar framkvæmdu svo aðgerðina og tók hún alls fjórar klukkustundir. Aðgerðin heppnaðist vel og er Bank nú á batavegi. Sæskjaldbakan getur náð allt að áttatíu ára aldri, en hún er á lista yfir dýr í útrýmingarhættu.
Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Erlent Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent Fleiri fréttir Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Sjá meira