Slapp úr ólinni og var drepinn Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 17. mars 2017 09:02 Grizz var tíu mánaða.
Mikil reiði er á Nýja-Sjálandi eftir að lögreglumaður skaut hundinn Grizz til bana á flugvellinum í Auckland í gær. Hundurinn, sem notaður var í öryggiseftirlit, hafði losnað úr ólinni og hlaupið út á völlinn, með þeim afleiðingum að röskun varð á nokkrum flugferðum. Lögregluyfirvöld segja að ómögulegt hafi verið að ná hundinum, en atvikið varð til þess að sextán flugferðum seinkaði um nokkrar klukkustundir. Þá hefur breska ríkisútvarpið eftir starfsmanni flugvallarins að það hafi verið lokaúrræði lögreglumannsins að drepa hundinn. Þessi ákvörðun lögreglumannsins hefur hins vegar vakið mikla reiði og furðar fólk sig á því að ekki hafi verið notuð deyfibyssa frekar. Fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins að hundurinn hafi verið laus í um tvær klukkustundir, og að hann hafi meðal annars hlaupið út á flugbrautir. Haft er eftir talsmanni lögreglunnar að allt hafi verið reynt til þess að ná hundinum. „Við reyndum allt; mat, leikföng, aðra hunda, en ekkert virkaði,“ segir talsmaðurinn Mike Richards, og bætir við að á endanum hafi flugmálayfirvöld fyrirskipað að skjóta ætti hundinn. Richards sagðist ekki vita hvers vegna hundurinn var ekki skotinn með deyfilyfi. „En það voru engar deyfibyssur á flugvellinum, og lögregla á heldur engar slíkar.“
Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Sjá meira