Fyrri æfingin
Hamilton hafði rúmlega hálfa sekúndu í forskot á restina af ökumönnunum. Hamilton og Bottas notuðu mýkstu dekkjagerðina sem er últra-mjúk þessa helgina. Aðrir settu sína hröðustu tíma almennt á ofur-mjúku dekkjunum sem eru ögn hægari. Munurinn er því ekki alveg eins gapandi og við fyrstu sín.
Heimamaðurinn, Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji á fyrri æfingunni. tveimur þriðju úr sekúndu hægari en Hamilton.
Jolyon Palmer á Renault var mikið í bílskúrnum á fyrri æfingunni. Gírkassinn var að valda vandræðum. Lukka breska ökumannsins breyttist lítið á seinni æfingunni.

Vettel skipti Mercedes ökumönnunum í tvennt. Hamilton fljótastur og Bottas þriðji. Kimi Raikkonen var fjórði á Ferrari. Þar á eftir komu Red Bull ökumennirnir.
Tími Hamilton á seinni æfingunni; 1.23:620 er innan við einum tíunda úr sekúndu hægari en besti tíminn á Albert Park brautinni. Vettel á besta tímann síðan 2011. Það er met sem verður að öllum líkindum slegið í tímatökunni á morgun, að því gefnu að það verðu þurrt.
Romain Grosjean varð áttundi á Haas bílnum á seinni æfingunni líkt og þeirri fyrri.
Palmer missti stjórn á bílnum í síðustu beygjunni fyrir ráskaflann og skall á varnarvegg. Æfingin var stöðvuð tímabundið á meðan brautin var hreinsuð.
Max Verstappen tók upp á því að slá grasið í kringum brautina og skemmdi gólfið í bílnum með garðyrkjustörfunum. Hann þurfti því að vera í bílskúr Red Bull liðsins lengi og tókst ekki að fara nema átta hringi.
Fernando Alonso á McLaren veitti stuðningsmönum liðsins smá vonarglætu með því að ná 12. besta tímanum og hann ók 19 hringi.
Bein útsending frá tímatökunni hefst klukkan 5:50 í fyrramálið og keppnin verður í beinni útsendingu frá klukkan 4:30 á sunnudagsmorgun í leiftrandi háskerpu á Stöð 2 Sport. Tryggðu þér áskrift á 365.is.
Hér að neðan má sjá gagnvirkt brautarkort þar sem finna má öll helstu úrslit helgarinnar.