Nálgast fæðingarstað kalífadæmis ISIS í Mosul Samúel Karl Ólason skrifar 20. mars 2017 13:38 Meðlimur sérsveita Íraks beinir vopni sínu í átt að ISIS-liðum. Vísir/AFP
Stjórnarliðar nálgast nú al-Nuri moskuna í Mosul, þar sem Abu Bakr al Baghdadi lýsti yfir stofnun kalífadæmis Íslamska ríkisins í júlí 2014. Bardagar um borgina, sem er nú næst stærsta í Írak hafa nú staðið yfir í um sex mánuði og íbúar sem flýja undan átökunum lenda í vandræðum vegna þess hve margir halda nú þegar til í flóttamannabúðum á svæðinu. Stöðva þurfti sóknina gegn ISIS um helgina vegna slæms veðurs en hún hófst aftur í gær. Markmið stjórnarliða er að ná moskunni, sem er aldagömul, en það væri mikið högg fyrir vígamenn ISIS.Samkvæmt Reuters er talið að um tvö þúsund vígamenn haldi til í borginni. Þeir verjast af mikilli hörku og notast mikið við leyniskyttur og sjálfsmorðsárásir til að hægja á sókn stjórnarliða. Bandaríkin gerðu loftárás nærri moskunni um helgina og felldu meðal annars háttsettan leiðtoga samtakanna frá Rússlandi, Abdul Kareem al Rusi. Talið er að allt að 355 þúsund borgarar hafi flúið Mosul frá því að átökin hófust þar. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna opnaði nýverið flóttamannabúðir sem fylltust á einni viku. Verið er að reisa nýjar búðir fyrir þær þúsundir fjölskyldna sem flýja frá Mosul.
Mið-Austurlönd Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira