KA gekk frá Selfyssingum í seinni hálfleik Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. apríl 2017 19:04 Elfar Árni skoraði annað mark KA. vísir/vilhelm
KA, sem verður nýliði í Pepsi-deildinni í sumar, komst auðveldlega í undanúrslit Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld þegar liðið lagði Inkasso-deildarlið Selfoss, 4-1, í Boganum fyrir norðan. KA-liðið var betri aðilinn allan tímann en gekk illa að koma boltanum í netið í fyrri hálfleik. Gestirnir refsuðu þeim fyrir það og skoruðu mark úr vítaspyrnu á 44. mínútu. Callum Williams, varnarmaður KA, fékk boltann í höndina innan teigs og Alfi Conteh Lacalle skoraði úr vítaspyrnunni framhjá Srdjan Rajkovic sem fór þó í rétt horn, 1-0. Það tók KA aðeins rúma mínútu að skora í seinni hálfleik en það gerði Almarr Ormarsson þegar hann fylgdi á eftir stangarskoti Hallgríms Mar Steingrímssonar, 1-1. Framherjinn stóri, Elfar Árni Aðalsteinsson, kom KA í 2-0 þegar hann stangaði boltann í netið eftir fallega fyrirgjöf Ólafs Arons Péturssonar frá vinstri og Hallgrímur jók forskotið í 3-1 með fallegu skot fyrir utan teig á 59. mínútu. KA-menn í raun búnir að ganga frá leiknum á fimmtán mínútna kafla. Þeir hefðu getað skorað fleiri mörk en Guðjón Orri Sigurjónsson hafði nóg að gera í marki Selfoss og varði nokkrum sinnum mjög vel. Daníel Hafsteinsson skoraði fjórða mark KA á 89. mínútu og þar við sat, 4-1. KA mætir annað hvort ÍA eða Grindavík í undanúrslitum en þau eigast við klukkan 19.15. Á sama tíma hefst leikur Breiðabliks og FH en hann er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3 HD.
Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira