Rekstrarniðurstaða borgarinnar tæplega 15 milljörðum betri en áætlað var Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. apríl 2017 13:57 Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. visir/vilhelm
Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar var jákvæð um 26,4 milljarða króna á síðasta ári og var tæplega 15 milljörðum betri en gert var ráð fyrir. Fram kemur í tilkynningu frá borginni að öll B-hlutafyrirtæki skiluðu jákvæðri rekstrarniðurstöðu. Ársreikningurinn var kynntur á fundi borgarráðs í dag. Rekstrarniðurstaða A-hluta var rúmlega tveimur milljörðum betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Betri rekstrarniðurstaða skýrist einkum af lægri rekstrarkostnaði, en betri afkoma samstæðunnar af lægri verðbólgu en áætlun hafði gert ráð fyrir.Eigið fé 245 milljarðar Heildareignir Reykjavíkurborgar námu í árslok 535 milljörðum króna og heildarskuldir, ásamt skuldbindingum, voru um 290 milljarðar króna. Eigið fé var 245 milljarðar króna en þar af var hlutdeild meðeiganda rúmir 13 milljarðar króna. „Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar¬svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf,“ segir í tilkynningu borgarinnar.Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.vísir/daníelÓtrúlegt ef ekki hefði tekist að skila rekstrarafgangi Sjálfstæðisflokkurinn lagði fram bókun þegar ársreikningurinn var kynntur í dag. Borgarfulltrúar flokksins „telja ekki seinna vænna að rekstur Reykjavíkurborgar, sem hefur verið í algjörum ólestri allt þetta kjörtímabil sem og kjörtímabilið 2010-2014, verði betri. Allt frá árinu 2010 hefur vandræðagangur verið á rekstrinum með of slöku rekstraraðhaldi því rekstrarvandræði borgarinnar hafa verið útgjaldavandi en ekki tekjuvandi.“ Þeir segja það ótrúlegt ef ekki hefði tekist að gera árið 2016 upp með rekstrarafgangi enda hafi orðið gríðarleg tekjuaukning í íslensku samfélagi og sjáist það á jákvæðri rekstarniðurstöðu sveitarfélaga um land allt. „Þegar rekstur Reykjavíkurborgar, langstærsta sveitarfélags landsins er borinn saman við fjögur stærstu nágrannasveitarfélögin má sjá að rekstrarárangur borgarinnar er lakari en hjá þessum sveitarfélögum þrátt fyrir hærri tekjur af hverjum íbúa í borginni. Skatttekjur á hvern íbúa borgarinnar eru 624.000 kr. en meðaltal hinna sveitarfélaganna er 488.000 kr. á hvern íbúa þeirra. Þá er veltufé frá rekstri Reykjavíkurborgar 10,9% sem er til bóta frá alltof lágu veltufé árin á undan en meðaltal hinna sveitarfélaganna er 13,15%. Skuldir borgarsjóðs (A-hluta) aukast um 3 milljarða á milli áranna 2015-2016 en skuldir hinna sveitarfélaganna standa í stað eða lækka. Þá má nefna að Reykjavíkurborg leggur hámarksútsvar á íbúa sína en meðaltal hinna sveitarfélaganna er undir lögbundnu hámarksútsvari,“ segir í bókun Sjálfstæðisflokksins.
Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira