Icelandair og JetBlue í frekara samstarf Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. maí 2017 13:27 Icelandair og JetBlue hafa verið í samstarfi undanfarin fimm ár og fara nú í frekara samstarf. vísir/vilhelm
Icelandair og bandaríska flugfélagið JetBlue tilkyntu í dag að félögin hefðu samið um samstarf sín á milli varðandi punktasöfnun. Samstarfið felur það í sér að félagar í Icelandair Saga Club geta nú safnað Vildarpunktum og Kortastigum á öllum flugleiðum JetBlue og á sama hátt geta félagar í TrueBlue fríðindaklúbbi JetBlue safnað punktum á öllum flugleiðum Icelandair. Icelandair fagnar samstarfinu með JetBlue með tvöföldum Vildarpunktum ef félagar fljúga fyrir 7. júlí. „Í dag eru fimm ár síðan Icelandair og JetBlue tóku fyrstu skrefin í samstarfi sem síðan hefur styrkst ár frá ári“, segir Jamie Perry, framkvæmdastjóri markaðsmála JetBlue, í tilkynningu „Samkomulagið sem við kynnum nú er spennandi viðbót fyrir viðskiptavini beggja flugfélaga“. „Samkomulagið við JetBlue gefur farþegum beggja flugfélaga tækifæri til þess að safna fleiri punktum en áður. Við fögnum því að geta boðið farþegum Icelandair nýja möguleika um leið og við bjóðum fjölmarga viðskiptavini JetBlue velkomna til okkar,“ er haft eftir Guðmundi Óskarssyni, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair, í tilkynningu. Undanfarin fimm ár hafa JetBlue og Icelandair átt samstarf um gagnkvæma farseðlaútgáfu á flugleiðum og með samkenndum (codeshare) flugum.
Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Sjá meira