Þrír Frakkar skoruðu sín fyrstu landsliðsmörk í sigri á Englendingum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. júní 2017 22:16 Ousmane Dembélé og Kylian Mbappé fagna marki þess fyrrnefnda. vísir/getty
Frakkland vann 3-2 sigur á Englandi í vináttulandsleik á Stade de France í París í kvöld. Þessi lið hefðu mæst á þessum sama velli í 8-liða úrslitum á EM í fyrra ef Englendingum hefði tekist að vinna Íslendinga í 16-liða úrslitunum. Harry Kane kom Englandi yfir á 9. mínútu en 13 mínútum síðar jafnaði miðvörðurinn Samuel Umtiti metin með sínu fyrsta landsliðsmarki. Tveimur mínútum fyrir hálfleik kom Djibril Sidibé Frökkum yfir með sínu fyrsta marki fyrir landsliðið. Eftir tveggja mínútna leik í seinni hálfleik var dæmd vítaspyrna á Frakka og Raphaël Varane sendur í sturtu. Notast þurfti við myndbandstæknin í þessu tilfelli. Kane fór á punktinn og skoraði af öryggi, sitt áttunda mark fyrir enska landsliðið. Þrátt fyrir að vera einum færri voru Frakkar sterkari aðilinn. Á 71. mínútu átti Kylian Mbappé skot í slánna á marki Englendinga. Sjö mínútum síðar lagði Mbappé boltann á Ousmane Dembélé sem skoraði sigurmark Frakka. Líkt og Umtiti og Sidibé var hann að skora sitt fyrsta landsliðsmark.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Fleiri fréttir Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Sjáðu mörkin hjá ungu strákunum gegn Sviss Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Sjá meira