Fyrsti sigurinn hjá Hipólító kom í hús í Laugardalnum í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júlí 2017 21:10 Framarar fagnar marki í sigrinum á Leikni í kvöld. Vísir/Andri Marinó
Portúgalinn Pedro Hipólító vann í kvöld sinn fyrsta sigur sem þjálfari Fram en hann kom ekki fyrr en í fimmtu tilraun. Tveir átján ára strákar skoruðu fyrir Framliðið í kvöld. Fram vann þá 3-0 sigur á Leikni Reykjavík á Laugardalsvellinum og komst fyrir vikið upp í sjöunda sæti deildarinnar. Fram hoppað bæði upp fyrir Leikni R. og HK með þessum sigri í Laugardalnum. Ivan Bubalo, Helgi Guðjónsson og Axel Freyr Harðarson skoruðu mörk Framliðsins í leiknum. Þþetta var áttunda mark Bubalo í deildinni. Markið skoraði Bubalo úr vítaspyrnu á lokamínútu fyrri hálfleiksins. Helgi Guðjónsson er fæddur árið 1999 og skoraði markið sitt á 55. mínútu en hann hafði komið inn á sem varamaður strax á 32. mínútu leiksins. Axel Freyr Harðarson innsiglaði síðan sigurinn á 89. mínútu en hann kom inn á sem varamaður og er líka fæddur árið 1999 eins og Helgi. Pedro Hipólító var ráðinn þjálfari Fram í byrjun júlí en liðið hafði fyrir þennan leik ekki enn náð í stig í Inkasso deildinni. Fram hafði tapað fjórum fyrstu leikjum sínum undir stjórn Pedro Hipólító með minnsta mun, 0-1 á móti Keflavík, 1-2 á móti Þrótti, 2-3 á móti HK og 2-3 á móti Haukum. Það er því óhætt að segja að Portúgalinn hafi fagnað langþráðum sigri í þessum leik í kvöld. Leiknismenn hafa nú tapað tveimur leikjum í röð og eru komnir alla leið niður í níunda sæti eftir þetta stigalausu för sína á Þjóðarleikvanginn. Andri Marinó Karlsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á leiknum á Laugardalsvelli í kvöld og tók þessar myndir hér fyrir neðan.Vísir/Andri MarinóVísir/Andri MarinóVísir/Andri MarinóVísir/Andri MarinóVísir/Andri MarinóVísir/Andri MarinóVísir/Andri MarinóVísir/Andri Marinó
Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira