Eitraða vatnið í Flint leiddi til „hræðilegrar aukningar“ í fósturláti Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. september 2017 10:48 Íbúar í Flint mótmæltu harðlega hvernig komið var fram við þá. Ljóst er að afleiðingarnar af mengaða vatninu eru hræðilegar. vísir/getty
Frjósemi í borginni Flint í Michigan varð marktækt minni eftir að ákveðið var að skipta yfir í blýmengað vatn árið 2014. Þetta er meðal niðurstaðna í rannsókn á áhrifum mengunarinnar. Þar segir að hnignunina megi aðallega rekja til þess að veikustu fóstrin hafi orðið fyrir skaða sem hafi leitt til „hræðilegrar aukningar“ á fósturdauða og fósturláti. Á bilinu 198 til 276 fleiri börn hefðu fæðst, sé miðað við þau sem voru getin á bilinu nóvember 2013 til mars 2015, hefðu yfirvöld í Flint ekki ákveðið að skipta yfir í vatnið sem reyndist blýmengað. Enn er verið að vinna úr rannsókninni en höfundar greinarinnar sem er væntanleg eru heilsuhagfræðingarnir Daniel Grossman við West Virginia háskólann og David Slusky við Kansas háskóla.Íbúi í Flint fær vatnsflöskur að gjöf frá hjálparsamtökum eftir að málið komst í hámæli.vísir/gettyÍ apríl 2014 var ákveðið að tengja neysluvatnskerfið í Flint við samnefnda á, Flint ána. Um tímabundna ráðstöfun til að spara peninga var að ræða á meðan unnið yrði að gerð nýrrar lagnar frá Huron vatni, í nágrenninu. Strax eftir breytinguna fór að bera á kvörtunum um lykt og útlit vatnsins en vel fram á næsta ár svöruðu yfirvöld því til að vatnið væri hættulaust til neyslu. Rannsóknir yfirvalda í Flint og annarra stofnana leiddu í ljós að blýmagn í vatninu var í sumum tilfellum tugfalt eða hundraðfalt yfir leyfilegum mörkum Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna. Rannsókn frá september 2015 sýndi að fjöldi barna með hátt magns blýs í blóði sínu tvöfaldaðist eftir að breytinguna á neysluvatninu. Það var ekki fyrr en í október 2015 að íbúar fengu aftur vatn úr Huron stöðuvatninu.Að neðan má sjá upplýsandi innslag John Oliver frá því í apríl í fyrra um ástandið í Flint.Neikvæð áhrif blýs á heilsu barna eru vel þekkt. Lægri greind, andfélagsleg hegðun, minni sókn í menntun og ýmis önnur vandamál sem hafa áhrif á heila, nýru og lifur. Áhrif á fóstur eru minna þekkt en niðurstöður nýju rannsóknarinnar benda til þeirra. Vísir fjallaði ítarlega um málið á sínum tíma. Hér má lesa fréttaskýringu um málið frá því í fyrra, Ameríski draumurinn sem varð að drykkjarvatni.
Tengdar fréttir Neyðarástand í Flint vegna blýmengunar Bandarísk stjórnvöld hafa lýst yfir neyðarástandi í bænum Flint í Michigan vegna blýmengunar í vatni þar. 18. janúar 2016 07:00 John Oliver og brúðurnar úr Sesam-stræti fræða okkur um blýmengun Blýmengun er alvarlegt heilsufarslegt vandamál víða í Bandaríkjunum. 18. apríl 2016 14:22 Þrír ákærðir í Flint Saksóknarar segja von á fleiri ákærum vegna vatnsmengunarinnar í Flint í Bandaríkjunum. 20. apríl 2016 22:24 Ameríski draumurinn sem varð að eitruðu drykkjarvatni Það var vorið 2014 sem að íbúar í borginni Flint í Michigan í Bandaríkjunum fóru að taka eftir því að vatnið sem kom úr krananum í íbúðum þeirra lyktaði illa og var stundum blátt, grænt eða brúnt á litinn. 4. febrúar 2016 09:00 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Sjá meira
Neyðarástand í Flint vegna blýmengunar Bandarísk stjórnvöld hafa lýst yfir neyðarástandi í bænum Flint í Michigan vegna blýmengunar í vatni þar. 18. janúar 2016 07:00
John Oliver og brúðurnar úr Sesam-stræti fræða okkur um blýmengun Blýmengun er alvarlegt heilsufarslegt vandamál víða í Bandaríkjunum. 18. apríl 2016 14:22
Þrír ákærðir í Flint Saksóknarar segja von á fleiri ákærum vegna vatnsmengunarinnar í Flint í Bandaríkjunum. 20. apríl 2016 22:24
Ameríski draumurinn sem varð að eitruðu drykkjarvatni Það var vorið 2014 sem að íbúar í borginni Flint í Michigan í Bandaríkjunum fóru að taka eftir því að vatnið sem kom úr krananum í íbúðum þeirra lyktaði illa og var stundum blátt, grænt eða brúnt á litinn. 4. febrúar 2016 09:00