Hollendingar þurftu að vinna 7-0 en unnu bara 2-0 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. október 2017 20:36 Arjen Robben skoraði bæði mörk Hollendinga. Vísir/EPA
Svíar komust í kvöld í umspil um laust sæti á HM í Rússlandi næsta sumar þrátt fyrir tveggja marka tap á móti Hollandi. Við Íslendingar sáum til þess að bronsliðið frá HM í Brasilíu 2014 kæmist ekki á EM í Frakklandi 2016 en að þessu sinni voru það Svíar sem skilja Hollendinga eftir í undankeppni. Hollenska landsliðið mun því missa af tveimur stórmótum í röð en að þessu sinni misstu þeir af umspilinu á markatölu. Svíar höfðu þriggja stiga og tólf marka forskot á Hollendinga fyrir leikinn og því þurfti hollenska liðið að vinna sjö marka sigur til að ná öðru sætinu af Svíum. Hollenska liðið var í stórsókn frá fyrstu mínútu og það var ljóst á öllu að Svíarnir ætluðu að reyna að halda sínu. Aðeins stórslys myndi taka af þeim sætið í umspilinu. Arjen Robben kom Hollendingum í 2-0 með tveimur mörkum fyrir hálfleik. Fyrra markið hans kom úr vítaspyrnu á 16. mínútu sem dæmd var fyrir hendi á Manchester United manninn Victor Lindelof. Annað mark Robben leit síðan dagsins ljós á 40. mínútu með laglegu skoti fyrir utan teig eftir stoðsendingu frá Ryan Babel. Hollendingum tókst ekki að bæta við fleirum mörkum í seinni hálfleiknum og urðu því að sætta sig við þriðja sætið í riðlunum og þar með að horfa á HM í sjónvarpinu næsta sumar. Svíar fá hinsvegar tækifæri til að komast til Rússlands í gegnum umspilið.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki míns“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Bayern München - Arsenal | Englandsmeistararnir heimsækja þýska stórliðið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Sjá meira