Betra fyrir íslenska liðið að spila á HM en EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. október 2017 20:15 Aron Einar Gunnarsson er einn allra mikilvægasti leikmaður íslenska liðsins og hann fær væntanlega degi meira til að jafna sig á HM næsta sumar en hann fékk á EM í Frakklandi 2016. Vísir/Eyþór
Íslenska fótboltalandsliðið getur nú farið að undirbúa sig fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta á meðan aðrar þjóðir eru enn að berjast fyrir farseðli sínum til Rússlands. Margir mun eflaust bera saman uppsetningu heimsmeistaramótsins 2018 við það hvernig Evrópumótið var sett upp sumarið 2016. Íslenskt knattspyrnuáhugafólk er farið að horfa til sumarsins og margir eflaust farnir að skipuleggja sumarfríið sitt í Rússlandi. Það verður ekki dregið í riðla í keppninni fyrr en 1. desember næstkomandi og það er erfitt að negla niður einhverja dagskrá fyrr en að það kemur í ljós í hvaða riðli, við hvaða þjóðir og á hvaða dögum íslenska liðið kemur til með að spila. Íslenska landsliðið tók þátt í Evrópumótinu í Frakklandi fyrir að verða einu og hálfu ári síðan að þar sem íslenska liðið var með sama byrjunarlið í öllum fimm leikjunum. Það er líklegt að Heimir Hallgrímsson muni ekki gera margar breytingar á byrjunarliði sínu á HM næsta sumar og álagið og ábyrgðin verður því á sömu mönnunum. Tími á milli leikja mun því skipta íslenska liðinu miklu máli enda þurfa okkar menn að fá daga til að jafna sig. Á Evrópumótinu í Frakklandi 2016 voru þrír dagar á milli leikja íslenska liðsins í riðlinum en sá tími gæti lengst á HM í Rússlandi. Íslenska liðið fékk fjóra daga til að undirbúa sig fyrir leikinn á móti Englandi í sextán liða úrslitunum (22. júní til 27. júní) sem kom sér mjög vel. Það má búast við því að fjórir dagar verði á milli flestra leikja íslenska liðsins á HM í Rússlandi eins og Magnús Már Einarsson bendir á í frétt sinni á fótbolta.net. Þetta er reyndar ekki algilt því það eru einhverjar undantekningar. Síðasti riðillinn, H-riðilinn, er sem dæmi með aðeins þrjá daga á milli leikja og það væri því ekkert gott að lenda í honum. Hinsvegar gæti verið betra fyrir íslenska liðið að spila á HM en EM því liðið spilar væntanlega þrjá leiki sína í riðlunum á ellefu dögum í stað níu daga eins og á Evrópumótinu í Frakklandi. Á móti kemur reyndar að það geta verið mun lengri ferðalög á milli leikstaða verði íslenska liðið óheppið með leikvelli. Það gæti því tekið sinn toll á móti. Verði íslenska liðið hinsvegar heppið með ferðalög á meðan mótinu stendur þá ætti þessi aukadagur að nýtast lykilmönnum liðsins vel að safna orku fyrir næsta leik.
HM 2018 í Rússlandi Tengdar fréttir Strákarnir gista í „paradís“ í strandbæ við Svartahafið á HM | Myndir Íslenska landsliðið mun gista og æfa í bænum Gelendzhik á HM í Rússlandi á næsta ári. 10. október 2017 10:58 Íslensku strákarnir ekki þeir bestu í heimi, en þeir eru stórir og sterkir Mikið hefur verið rætt um árángur Íslands í gærkvöldi í heimsfjölmiðlunum. Ísland varð minnsta þjóðin í sögunni til þess að komast í lokakeppni Heimsmeistaramóts og heimurinn hreyfst með í víkingaklappinu sem ómaði á Laugardalsvelli. Fótboltasérfræðingar ESPN fjölluðu um árángur Íslands í spjallþætti sínum. 10. október 2017 14:45 Landsliðið í nýjum búningum í Rússlandi Eins og einhverjir muna eflaust eftir voru skiptar skoðanir um búningana sem liðið spilaði í á EM. Framkvæmdastjóri KSÍ segir þó nýju búningana ekki gerða vegna einhverrar óánægju. 10. október 2017 13:15 Litli knattspyrnurisinn til Rússlands Ísland vann í gær eitt sitt allra stærsta íþróttaafrek í sögu þjóðarinnar er karlalandsliðið í knattspyrnu tryggði sér þátttökurétt í lokakeppni HM, sem fer fram í Rússlandi næsta sumar. Árangurinn á EM í Frakklandi var engin tilviljun og strákarnir ætla sér enn stærri afrek á næstu misserum. 10. október 2017 06:00 Lars Lagerbäck sendir Íslendingum kveðju: Ég vaknaði brosandi í morgun Lars Lagerbäck, fyrrum þjálfari íslenska landsliðsins og núverandi þjálfari norska landsliðsins, sendi KSÍ og Íslendingum kveðju í tilefni af því að íslenska landsliðið tryggði sér sæti á HM í Rússlandi. 10. október 2017 16:17 Eiður Smári: Aldurinn nær okkur öllum Íslenska landsliðið og þeirra magnaða afrek er enn til umfjöllunar út um allan heim, og var Eiður Smári Guðjohnsen var í viðtali við bandarísku fréttastöðina CNN nú rétt í þessu. 10. október 2017 12:06 Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Bayern München - Arsenal | Englandsmeistararnir heimsækja þýska stórliðið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Sjá meira
Strákarnir gista í „paradís“ í strandbæ við Svartahafið á HM | Myndir Íslenska landsliðið mun gista og æfa í bænum Gelendzhik á HM í Rússlandi á næsta ári. 10. október 2017 10:58
Íslensku strákarnir ekki þeir bestu í heimi, en þeir eru stórir og sterkir Mikið hefur verið rætt um árángur Íslands í gærkvöldi í heimsfjölmiðlunum. Ísland varð minnsta þjóðin í sögunni til þess að komast í lokakeppni Heimsmeistaramóts og heimurinn hreyfst með í víkingaklappinu sem ómaði á Laugardalsvelli. Fótboltasérfræðingar ESPN fjölluðu um árángur Íslands í spjallþætti sínum. 10. október 2017 14:45
Landsliðið í nýjum búningum í Rússlandi Eins og einhverjir muna eflaust eftir voru skiptar skoðanir um búningana sem liðið spilaði í á EM. Framkvæmdastjóri KSÍ segir þó nýju búningana ekki gerða vegna einhverrar óánægju. 10. október 2017 13:15
Litli knattspyrnurisinn til Rússlands Ísland vann í gær eitt sitt allra stærsta íþróttaafrek í sögu þjóðarinnar er karlalandsliðið í knattspyrnu tryggði sér þátttökurétt í lokakeppni HM, sem fer fram í Rússlandi næsta sumar. Árangurinn á EM í Frakklandi var engin tilviljun og strákarnir ætla sér enn stærri afrek á næstu misserum. 10. október 2017 06:00
Lars Lagerbäck sendir Íslendingum kveðju: Ég vaknaði brosandi í morgun Lars Lagerbäck, fyrrum þjálfari íslenska landsliðsins og núverandi þjálfari norska landsliðsins, sendi KSÍ og Íslendingum kveðju í tilefni af því að íslenska landsliðið tryggði sér sæti á HM í Rússlandi. 10. október 2017 16:17
Eiður Smári: Aldurinn nær okkur öllum Íslenska landsliðið og þeirra magnaða afrek er enn til umfjöllunar út um allan heim, og var Eiður Smári Guðjohnsen var í viðtali við bandarísku fréttastöðina CNN nú rétt í þessu. 10. október 2017 12:06