Kaupir tveggja prósenta hlut í Kviku Hörður Ægisson skrifar 8. nóvember 2017 08:30 Áætla má að félag Sigurðar hafi greitt nærri 200 milljónir króna fyrir rúmlega tveggja prósenta hlut í bankanum. Vísir/GVA
Sigurður Sigurgeirsson, fjárfestir og fyrrverandi byggingarverktaki í Kópavogi, er kominn í hluthafahóp Kviku eftir að hafa eignast 2,05 prósenta hlut í bankanum. Eftir kaupin er Sigurður, sem er meðal annars í hópi tuttugu stærstu hluthafa tryggingafélagsins VÍS, ellefti stærsti eigandi fjárfestingabankans í gegnum eignarhaldsfélagið Breiðahvarf. Félagið keypti hlutinn af fjárfestingafélaginu Vörðu Capital, sem er að stærstum hluta í eigu viðskiptafélaganna Jónasar Hagans Guðmundssonar og Gríms Garðarssonar, en það hefur selt allan hlut sinn í Kviku banka, eins og Markaðurinn greindi frá í síðustu viku. Varða Capital var áður fimmti stærsti hluthafi bankans með 7,7 prósenta eignarhlut. Aðrir kaupendur að hlut Vörðu voru meðal annars Gunnar Sverrir Harðarson og Þórarinn Arnar Sævarsson, eigendur RE/MAX á Íslandi, hjónin Bogi Þór Siguroddsson og Linda Björk Ólafsdóttir, sem eiga heildverslunina Johan Rönning, og Einar Sveinsson fjárfestir. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa bréf í Kviku verið að ganga kaupum og sölum að undanförnu á genginu 6 til 6,3 krónur á hlut. Því má áætla að félag Sigurðar hafi greitt nærri 200 milljónir króna fyrir rúmlega tveggja prósenta hlut í bankanum.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Sjá meira