Vegum lokað víða um land vegna veðurs Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. nóvember 2017 18:21 Vonskuveður er í Öræfum og er lokað þar. lögreglan á suðurlandi
Vonskuveður er nú víða um land þar sem það tók að hvess á nýjan leik nú síðdegis af norðaustri. Við það hefur skafrenningur aukist ekki hvað síst um landið norðan-og austanvert en því fylgir að skyggni til minnkar. Vegagerðin hefur því lokað vegum víða um land. Þannig er Holtavörðuheiði lokuð sem og Kleifaheiði. Þá er hringvegurinn lokaður frá Hrútafirði að Vatnsdal. Þá er jafnframt lokað í Öræfasveit og Lyngdalsheiði er einnig ófær. Á sunnanverðu Snæfellsnesi eru vegir einnig lokaðir vegna óveðurs og þá er Fróðárheiði einnig lokuð. Þá er ófært á Steingrímsfjarðarheiði, Klettshálsi og á Hálfdán. Færð og aðstæður á vegum eru annars þessar samkvæmt vef Vegagerðarinnar:Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er mjög víða á Suðurlandi. Skafrenningur er á fjallvegum. Lyngdalsheiði er lokuð.Á Vesturlandi er hálka eða snjóþekja á vegum. Flughálka er á Skógarströnd. Lokað er vegna óveðurs á sunnanverðu Snæfellsnesi, Fróðárheiði og á Holtavörðuheiði.Á Vestfjörðum er skafrenningur og éljagangur á flestum leiðum. Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði, Klettshálsi, Kleifaheiði og á Hálfdán. Flughálka er á milli Kleifaheiðar og Brjánslækjar. Þungfært er í Ísafjarðardjúpi og á Þröskuldum.Á Norðurlandi er snjóþekja eða hálka á vegum og töluverð snjókoma, skafrenningur eða éljagangur. Þæfingsfærð er á Öxnadalsheiði. Ófært er milli Laugarbakka, Hvammstanga og yfir í Vatnsdal, auk þess er vegurinn um Dalsmynni ófær. Flughálka er í Bakkafirði.Snjóþekja eða hálka er á vegum á Austurlandi en þæfingur er á Fjarðarheiði. Snjóþekja og hálka er með Suðausturströndinni og nokkuð hvasst.
Veður Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Fleiri fréttir Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Bjarni fundaði með Guterres Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Sjá meira