Ætla að ferðast með íslenska landsliðið alla leið til Indónesíu í janúar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2017 08:15 Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson verður fjarri góðu gamni í Indónesíuferðinni. Vísir/Ernir
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er nýkomið heim frá Katar og nú er ljóst að næsta ferð landsliðsins verður líka til Asíu. Landliðsþjálfarinn Heimir Hallgrímsson mun þá ferðast ennþá lengra með liðið sitt en hann gerði í síðustu ferð sem lauk í síðustu viku. Fótbolti.net hefur það eftir fréttamiðlum frá Indónesíu að íslenska landsliðið muni spila á móti Indónesíu í vináttuleik í Indónesíu í janúar. Indónesía er að undirbúa 23 ára lið sitt fyrr Asíuleikana sem verða næsta sumar. Liðið sem mun spila þennan leik gegn Íslandi í fyrsta mánuði næsta árs verður því skipað leikmönnum sem eru 23 ára og yngri. „Við viljum fá betri vináttuleiki fyrir Asíuleikana. Þessi vináttuleikur (gegn Íslandi) er í forgangi fyrir U23 ára lið okkar," sagði Ratu Tisha Destria framkvæmdastjóri knattspyrnusambands Indónesíu í samtali við CNN þar í landi. Íslenska landsliðið verður ekki með sitt sterkasta lið í þessari ferð því það eru ekki alþjóðlegir leikdagar í janúar og því geta leikmenn á Englandi og meginlandi Evrópu ekki tekið þátt. Liðið verður væntanlega eingöngu skipað leikmönnum af Norðurlöndunum. Heimir Hallgrímsson er að undirbúa liðið fyrir heimsmeistarakeppnina í Rússlandi næsta sumar þar sem Ísland mun í fyrsta sinn vera meðal þátttökuliða. Íslenska landsliðið fór líka til Asíu í byrjun þessa árs en strákarnir spiluðu þá á æfingamóti í Kína.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Sjá meira