1.500 hundruð fluttir á brott vegna flóðahættu í París Samúel Karl Ólason skrifar 28. janúar 2018 21:09 Búist er við að flóðin muni ná hámarki í nótt. Vísir/AFP
Áin Signa í París í Frakklandi var rúmum fjórum metrum yfir sinni hefðbundnu vatnshæð í dag og búist er við að hún muni ná hámarki í nótt. Flytja þurfti um 1.500 manns frá heimilum sínum vegna flóða og hættu á frekari flóðum í og við borgina. Hundruð heimila eru án rafmagns. Eins og franska fréttaveitan AFP bendir á er búist við því að áin muni ná í 5,85 til 5,95 metra hæð í nótt. Hæst hefur vatnshæðin farið í 8,62 metra árið 1910 en hún fór einnig í 6,1 metra árið 2016. Þá þurfti að flytja ómetanleg listaverk úr kjallara Louvre safnsins.Sjá einnig: Náttúruhamfarir í FrakklandiÖllum nema viðbragðsaðilum hefur verið bannað að sigla á ánni og hefur það komið verulega niður á ferðaþjónustuaðilum Parísar. Þá hefur lögreglan þurft að vara fólk við því að synda þar eða sigla smáum bátum á henni. Það er sagt vera bannað og einstaklega hættulegt. Rigning á svæðinu hefur verið gífurlega mikil. Samkvæmt Veðurstofu Frakklands hefur úrkoma í desember og janúar aðeins tvisvar sinnum mælst meiri frá árinu 1900. Sérfræðingar segja að þó búist sé við hagstæðu veðri á næstu vikum mun það taka margar vikur að vatnið sígi í jörðina þar sem rigningin sé búin að vera svo mikil. Ómögulegt sé að segja til um skaðann sem flóðin hafi og muni valda.
Veður Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Fleiri fréttir Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Sjá meira