Sagði Sigmund fiska í gruggugu vatni í umræðu um Arion banka Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 8. febrúar 2018 11:47 Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, svaraði fyrirspurnum frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, á þingi í dag. Vísir/Hanna
Bjarni Benediktsson, fjármála-og efnahagsráðherra, sagði Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, hafa verið að fiska í gruggugu vatni í umræðunni um Arion banka undanfarna mánuði. Þetta kom fram í síðara svari Bjarna til Sigmundar í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Sigmundur spurði Bjarna að sömu spurningum og hann spurði Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, að síðastliðinn mánudag, einnig í óundirbúnum fyrirspurnatíma. „Mun ríkið afsala sér forkaupsrétti að hlutabréfum í Arion banka eins og kröfuhafar eins og vogunarsjóðir fara fram á og mun ríkið selja vogunarsjóðunum þau 13 prósent sem það á í bankanum beint eins og þessir aðilar fara fram á líka?“ spurði Sigmundur Davíð og sagði um einfaldar spurningar að ræða sem hefði gengið erfiðlega að fá svör við frá ráðherrum ríkisstjórnarinnar. Hann ítrekaði því spurningarnar þrisvar í fyrri fyrirspurn sinni.Engin ákvörðun tekin upp forkaupsréttinn hafi ríkið hann á annað borð Bjarni svaraði því til að hann liti svo á að fullyrðingin sem fyrirspurnin byggði á væri röng, það er að ríkið eigi ekki forkaupsrétt að hlutabréfum í Arion banka. „Þessi fyrirspurn hún byggir á fullyrðingunni um að íslenska ríkið eigi forkaupsrétt ð hlutabréfunum í Arion banka. Ég vil halda því fram að þessi fyllyrðing hafi reynst röng hjá háttvirtum þingmanni síðastliðið vor, enda var málið lagt fyrir efnahags- og viðskiptanefnd og kynnt þar og menn virtust almennt sammála um að forkaupsrétturinn væri ekki til staðar. Varðandi það hvort íslenska ríkið eigi forkaupsrétt að bréfum sem kunna að skipta um hendur núna á þessu ári fyrir ætlaða skráningu bankans gilda um þann mögulega forkaupsrétt skýr ákvæði stöðugleikaskilyrðanna. Samkvæmt þeirri túlkun sem hefur verið framkvæmd af meðal annars Bankasýslunni gildir sú undanþága frá forkaupsréttinum að séu menn að skrá bankann á markað gildi forkaupsréttur ríkisins ekki, í mjög einfölduðu máli,“ sagði Bjarni og bætti því síðan við að ef íslenska ríkið hafi forkaupsrétt þá hafi engin ákvörðun verið tekin um að falla frá honum, hvorki fyrr né síðar, og það væri ekki til umræðu nú.Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.vísir/ernirSagði ráðherrana spila frá sér hagsmunum landsins Það sama ætti við 13 prósenta hlut ríkisins í bankanum; enginn væri að tala um að selja hlutinn beinni sölu. „Það er margt sem segir að það væri langheppilegast ef ríkið ætlaði að fara í sölu á þeim eignarhlut að það væri gert með opnum hætti og í tengslum við skráningu bankans á markað þannig að markaðslögmálin myndu gilda um það,“ sagði Bjarni. Sigmundur Davíð kom þá í pontu öðru sinni og sagði að hann yrði líklega að hætta að spyrja ráðherra ríkisstjórnarinnar þessara spurninga vegna þess að þeir nýttu hvert tækifæri sem gæfist til til þess „að spila frá sér stöðu, til að spila frá sér hagsmunum landsins.“ Hann spurði síðan hvers vegna vogunarsjóðirnir væru að fara fram á að ríkið afsalaði sér forkaupsréttinum ef hann væri ekki til staðar. „Hér liggur það fyrir, herra forseti, að þessi aðilar eru að fara fram á það af ríkinu að það afsali sér forkaupsrétti fyrir fram og samt koma hér ráðherrar og segja: Það er nú ekkert víst að ríkið eigi forkaupsrétt. Hvers vegna í ósköpunum er þá verið að fara fram á það af ríkinu að það taki ákvörðun um að afsala sér þessum rétti? Er ekki mikilvægt, á þessum tímapunkti, herra forseti, að við birtum öll gögn sem varða þetta mál? Er hvæstvirtur fjármálaráðherra til í að beita sér fyrir því með mér að öll gögn sem varða þessi stöðugleikaskilyrði verði birt?“ spurði Sigmundur.Eina sem stæði út af væri spurningin um hvers vegna íslenska ríkið ætti að eignast þriðja bankann Bjarni sagði þá að hann væri svo sannarlega talsmaður þess að sem mest af gögnum væru birt þannig að Sigmundur Davíð væri „ekki að fiska í gruggugu vatni eins og hann hefur verið að gera undanfarna mánuði.“ „Til dæmis þegar háttvirtur þingmaður hélt því beinlínis fram að íslenska ríkið gæti bara sisvona leyst til sín Arion banka án þess að nokkur greiðsla kæmi fyrir. Væntanlega var háttvirtur þingmaður þar meðal annars að vísa til þess að íslenska ríkið ætti kröfu á bankann upp á 84 milljarða sem reyndar stendur ekki nema í 35 milljörðum núna og menn ætluðu að sveifla því skuldabréfi til að leysa bara allan bankann til sín,“ sagði Bjarni. Fjármálaráðherra sagði svo að það eina sem stæði út af í málflutningi Sigmundar væri spurningin hvers vegna íslenska ríkið ætti að leggja tugi milljarða í að eignast þriðja bankann þegar það ætti nú þegar með langstærstu hlutdeild allra ríkja í Evrópu í fjármálakerfi sínu.
Alþingi Tengdar fréttir Sigmundur sótti að forsætisráðherra vegna Arion banka og vogunarsjóðanna Engin ákvörðun hefur verið tekin um sölu á 13 prósenta hlut ríkisins í Arion banka. Þetta kom fram í máli Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. 5. febrúar 2018 16:30 Lífeyrissjóðir hafa áhuga á að kaupa um tíu prósent í Arion Tólf lífeyrissjóðir samþykktu að fara í viðræður um kaup í Arion banka. Lýstu yfir áhuga á að kaupa tæplega tíu prósent. Einnig viðræður við tryggingafélög og verðbréfasjóði. Kaupréttur að hlut ríkisins verður nýttur gangi áformin eftir. 7. febrúar 2018 06:00 Kaupþing getur keypt hlut ríkisins í Arion banka á um 23 milljarða Ef Kaupþing nýtir sér kauprétt að 13% hlut ríkisins þarf félagið að greiða um 23 milljarða. Það jafngildir genginu 0,8 miðað við eigið fé bankans. Bréfin yrðu seld á sama gengi til lífeyrissjóða. Kaupþing vill svar frá sjóðunum fyrir helgi. 31. janúar 2018 07:30 Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Fleiri fréttir „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Sjá meira
Sigmundur sótti að forsætisráðherra vegna Arion banka og vogunarsjóðanna Engin ákvörðun hefur verið tekin um sölu á 13 prósenta hlut ríkisins í Arion banka. Þetta kom fram í máli Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. 5. febrúar 2018 16:30
Lífeyrissjóðir hafa áhuga á að kaupa um tíu prósent í Arion Tólf lífeyrissjóðir samþykktu að fara í viðræður um kaup í Arion banka. Lýstu yfir áhuga á að kaupa tæplega tíu prósent. Einnig viðræður við tryggingafélög og verðbréfasjóði. Kaupréttur að hlut ríkisins verður nýttur gangi áformin eftir. 7. febrúar 2018 06:00
Kaupþing getur keypt hlut ríkisins í Arion banka á um 23 milljarða Ef Kaupþing nýtir sér kauprétt að 13% hlut ríkisins þarf félagið að greiða um 23 milljarða. Það jafngildir genginu 0,8 miðað við eigið fé bankans. Bréfin yrðu seld á sama gengi til lífeyrissjóða. Kaupþing vill svar frá sjóðunum fyrir helgi. 31. janúar 2018 07:30