Markvörður Íslands í 14-2 tapinu var sæmdur Heiðurskrossi KSÍ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2018 15:45 Guðmundur Pétursson með Guðna Bergssyni formanni KSÍ og Guðrúnu Ingu Sívertsen varaformanni. KSÍ
Guðmundur Pétursson, fyrrum varaformaður KSÍ, var sæmdur Heiðurskrossi KSÍ á ársþingi sambandsins á laugardaginn fyrir störf sín í þágu þess. KSÍ segir frá þessu á heimasíðu sinni. Guðmundur var aðalmarkvörður KR árin 1966 til 1969 og síðan aftur sumarið 1971. Hann varð Íslandsmeistari með KR-liðinu 1968. Hann lék einnig þrjá A-landsleiki árið 1967, gegn Danmörku og Spáni. Þriðji og síðasti landsleikur hans var á Parken í Kaupmannahöfn 23. ágúst 1967 en hann fékk þá á sig fjórtán mörk í 14-2 tapi. Þetta er stærsta tap íslenska karlalandsliðsins frá upphafi. Guðmundur þjálfaði yngri flokka KR í mörg ár, meistaraflokk karla árið 1976 og hluta tímabils 1981. Guðmundur var jafnframt formaður rekstrarfélags KR þegar félagið varð Íslandsmeistari 1999 en það var fyrsti Íslandsmeistaratitill liðsins í 31 ár. Guðmundur settist í stjórn KSÍ árið 1990 og var varaformaður sambandsins árin 1990 til 1995. Hann hefur verið þingforseti á ársþingi KSÍ árin 2006 til 2018. Guðmundur á sæti í áfrýjunardómstól KSÍ, hann var eftirlitsmaður á vegum UEFA og sat í áfrýjunarnefnd UEFA. Guðmundur hefur verið nátengdur íslenskri knattspyrnu frá unga aldri og unnið gríðarlega gott starf í þágu knattspyrnuhreyfingarinnar á Íslandi, hvort sem það er á sviði félags- eða landsliða. KSÍ þakkaði honum fyrir frábær störf hans í gegnum tíðina á heimasíðu sinni.
Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira