Bætir í vind og éljagang í kvöld Kristín Ólafsdóttir skrifar 31. mars 2018 10:04 Það er éljagangur í kortunum. Vísir/Hanna
Gert er ráð fyrir að rofa muni til á Norðurlandi eftir því sem líður á daginn en sunnantil mun bæta í vind og éljagang með kvöldinu. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þá má búast við austlægri átt, víða 5-10 m/s og dálítlum éljum en lengst af þurru veðri vestantil. Rofa mun til norðanlands með deginum en bæta heldur í vind og éljagang sunnantil á landinu í kvöld og um landið vestanvert í nótt. Veðrið sem leikið hefur við íbúa höfuðborgarsvæðisins um páskahelgina mun því að öllum líkindum víkja fyrir ofankomu. Hiti verður 0 til 5 stig í dag en um og undir frostmarki fyrir norðan. Búast má við næturfrosti og líkur eru á talsverðu frosti í innsveitum norðan- og austanlands. Á morgun, páskadag, verður hæg breytileg átt og léttskýjað austanlands en suðlæg átt 8-13 m/s og él vestast á landinu. Él verða víða um norðanvert landið annað kvöld en rofar til syðra. En aftur austlæg átt á mánudag með dálítilum éljum víða um land, einkum sunnanlands. Samkvæmt frétt á vef Vegagerðarinnar, sem uppfærð var klukkan 07:01 í morgun, eru vegir greiðfærir víðast hvar á landinu. Þó er varað við hálku á Hellisheiði, Bröttubrekku og Holtavörðuheiði. Þá eru hálkublettir víða á Norðurlandi.Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á mánudag (annar í páskum):Norðaustlæg átt, 8-13 m/s og dálítil snjókoma eða él í flestum landshlutum, einkum S-lands. Frostlaust syðst að deginum, en frost annars 2 til 7 stig.Á þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag og föstudag:Ákveðnar norðlæg áttir með snjókomu eða éljagangi á N-verðu landinu, en bjartviðri sunna heiða. Talsvert frost á öllu landinu, en sums staðar frostlaust syðst að deginum.
Veður Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Fleiri fréttir Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Sjá meira