Spænska lögreglan gerði falsaða ungbarnamjólk upptæka Sigurgeir Ingi Þorkelsson Eyvinds skrifar 21. apríl 2018 16:30 Fölsuðu vörurnar líktu eftir þekktum vörumerkjum. Vísir / AFP
Spænska lögreglan hefur gert upptæk átta tonn af ólöglegu mjólkurdufti, ætlað ungabörnum, í Girona á Spáni. Óprúttnir aðilar höfðu þar komið upp verksmiðju og hafið framleiðslu á mjólkurduftinu. Starfsemin uppgötvaðist í kjölfar ábendingar frá Europol. Starfsemi samskonar verksmiðju hafði þegar verið stöðvuð í Póllandi en í aðgerð pólskra lögregluyfirvalda náðist enginn hinna seku. Vaknaði í kjölfarið grunur um að starfsemin hafði verið flutt annað. Fjórir menn voru handteknir í aðgerðum spænsku lögreglunnar, allir pólskir ríkisborgarar. Var einn þeirra skráður mjög hættulegur í gagnagrunnum lögreglunnar vegna glæpa sem hann hefur framið í heimalandi sínu. Þrír hinna handteknu hafa áður setið í fangelsi Þegar lögreglan kom á staðinn var varan komin á vörubretti og tilbúin til sendingar. Vörurnar voru merktar þekktum vörumerkjum í gerð barnamjólkurdufts. Ekki kemur þó fram í tilkynningu spænsku lögreglunnar nákvæmlega um hvaða vörumerki ræðir. Ekki er talið að alvarleg heilsuvá hafi stafað af mjólkinni. Hana skorti þó nauðsynleg næringarefni og var framleidd við aðstæður sem uppfylltu ekki þær hreinlætiskröfur sem gerðar eru til framleiðslu af þessu tagi.
Erlent Tengdar fréttir Evrópulögreglan óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á barnaníðingum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vísar á vefsíðu Europol með myndum sem gætu hjálpað til við að hafa uppi á barnaníðingum. 20. febrúar 2018 21:51 Tuttugu tölvuþrjótar handteknir eftir umfangsmikla rannsókn Europol Tuttugu töluþrjótar voru handteknir í gær eftir umfangsmikla rannsókn Europol en þeir sviku um eina milljón evra, sem nemur um 121 milljón íslenskra króna, út úr einstaklingum á Ítalíu og í Rúmeníu. 29. mars 2018 18:18 Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira
Evrópulögreglan óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á barnaníðingum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vísar á vefsíðu Europol með myndum sem gætu hjálpað til við að hafa uppi á barnaníðingum. 20. febrúar 2018 21:51
Tuttugu tölvuþrjótar handteknir eftir umfangsmikla rannsókn Europol Tuttugu töluþrjótar voru handteknir í gær eftir umfangsmikla rannsókn Europol en þeir sviku um eina milljón evra, sem nemur um 121 milljón íslenskra króna, út úr einstaklingum á Ítalíu og í Rúmeníu. 29. mars 2018 18:18