Gríðarlangur listi aðfinnslna í skýrslu Ríkisendurskoðunar um United Silicon Jóhann Óli Eiðsson skrifar 18. maí 2018 08:00 Frá fyrstu skóflustungu verksmiðjunnar. Víkurfréttir
Fjölmargar athugasemdir eru gerðar við aðkomu og eftirlit stjórnvalda í tengslum við útgáfu leyfa og eftirlit með rekstri kísilvers United Silicon í skýrslu Ríkisendurskoðunar um efnið. Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni er að úttekt Vinnueftirlits ríkisins á verksmiðjunni fór fram tæpum mánuði eftir að starfsemi hófst. Þá var ekki kannað hvort aðstandendur verksmiðjunnar hefðu fjárhagslega burði til að standa að henni. Tíu ára sorgarsaga United Silicon og fyrirrennara félagsins er flestum kunn. Kísilver þess var gangsett 13. nóvember 2016 en starfsemi þess stöðvuð rúmum tíu mánuðum síðar eftir ítrekaðar aðfinnslur og athugasemdir við aðstæður innan verksmiðjunnar og vegna lyktmengunar frá henni. Mánuði áður en verksmiðjan var ræst sendi Magnús Garðarsson, forstjóri United Silicon, bréf um að til stæði að hefja framleiðslu í lok október. Það dróst sem fyrr segir um hálfan mánuð. Fyrsta skoðun Vinnueftirlits ríkisins fór hins vegar fram 21. nóvember það ár. Þá fór úttekt á starfseminni með tilliti til starfsleyfisskilyrða ekki fram fyrr en 7. desember þrátt fyrir að óheimilt sé lögum samkvæmt að rekstur hefjist fyrr en eftirlitsmaður stofnunarinnar hafi gefið vottorð um að útbúnaður sé í lagi. Slíkt vottorð var gefið út þrátt fyrir að skilyrði þess hafi ekki verið uppfyllt. Í skýrslunni er einnig vikið að mengunarspá í umhverfismatsferlinu. Áður hefur komið fram að danska verkfræðistofan COWI fór fram á að nafn og merki fyrirtækisins yrðu fjarlægð af loftdreifilíkani í matsskýrslu sem fyrirtækið skilaði til Skipulagsstofnunar. Degi eftir að tilkynning COWI barst skilaði United Silicon skýrslu sem Force Technology hafði unnið að beiðni þess. „Í lögum og reglugerð um mat á umhverfisáhrifum er ekki að finna nein skilyrði um þá sem geta unnið að mati á umhverfisáhrifum, svo sem um menntun, vottun eða gæðakerfi. Að mati Skipulagsstofnunar gat það því ekki ráðið úrslitum hver vann spána. […] Ríkisendurskoðun telur aftur á móti óheppilegt að óvissa geti ríkt um uppruna útreikninga og líkana sem miklu máli skipta í mati á umhverfisáhrifum og að framkvæmdaraðilar geti lagt fram gögn í nafni fyrirtækja sem hafa ekki unnið þau þó að efnislega kunni niðurstöður þeirra að vera réttar,“ segir meðal annars í skýrslunni. Stofnunin leggur til að umhverfis- og auðlindaráðuneytið skerpi á kröfum sem gerðar eru til þeirra sem vinna umhverfismöt.Í skýrslunni er einnig vikið að því að í undirbúningsferlinu hafi ekki verið unnt að upplýsa um stjórn né stjórnendur fyrirtækisins sem ætlaði að standa fyrir rekstrinum en upplýsingar um eignarhald og stjórnendur verkefnisins voru afar misvísandi alla tíð. Í þágildandi lögum um ívilnunarsamninga var gerð krafa um óflekkað mannorð og orðspor framkvæmdastjóra aðila. Ekki fór fram nein könnun af hálfu stjórnvalda þess efnis heldur voru yfirlýsingar aðila teknar góðar og gildar. Könnun á slíku hefði hins vegar leitt í ljós að árið 2009 var fyrirtæki í eigu Magnúsar Garðarssonar sektað vegna brota á réttindum verkamanna og að honum hefði verið gert að segja upp hjá áðurnefndu COWI fyrir að hafa misnotað aðstöðu sína sem starfsmaður þar.
Birtist í Fréttablaðinu United Silicon Tengdar fréttir Lífeyrissjóðir óska eftir sakamálarannsókn á Magnúsi Garðarssyni Grunur um refsiverð brot af hálfu fyrrum framkvæmdastjóra United Silicon hf. 27. mars 2018 14:48 Frestur til að lýsa kröfum í bú United Silicon runninn út Frestur til að lýsa kröfum í þrotabú United Silicon rann út á föstudaginn langa, eða 30. mars. 3. apríl 2018 06:00 Mengun alltaf undir mörkum en gleymdist að reikna með lykt Á þeim tíma sem verksmiðja United Silicon starfaði fór losun aldrei yfir heimiluð mörk á þeim mengunarefnum sem tekið var á í starfsleyfi verksmiðjunnar. 13. apríl 2018 07:00 Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Sjá meira
Lífeyrissjóðir óska eftir sakamálarannsókn á Magnúsi Garðarssyni Grunur um refsiverð brot af hálfu fyrrum framkvæmdastjóra United Silicon hf. 27. mars 2018 14:48
Frestur til að lýsa kröfum í bú United Silicon runninn út Frestur til að lýsa kröfum í þrotabú United Silicon rann út á föstudaginn langa, eða 30. mars. 3. apríl 2018 06:00
Mengun alltaf undir mörkum en gleymdist að reikna með lykt Á þeim tíma sem verksmiðja United Silicon starfaði fór losun aldrei yfir heimiluð mörk á þeim mengunarefnum sem tekið var á í starfsleyfi verksmiðjunnar. 13. apríl 2018 07:00