Emil: Fyndin en sönn tölfræði hjá frænda mínum Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. maí 2018 14:00 Emil Hallfreðsson í viðtalinu á Laugardalsvelli í dag. vísir/vilhelm
Emil Hallfreðsson, leikmaður Udinese á Ítalíu, var einn þeirra leikmanna sem bættist við æfingahóp íslenska landsliðsins í fótbolta fyrir HM 2018 í dag en formlegur undirbúningur með öllum hópnum hefst eftir helgi. Strákarnir okkar eru að tínast til landsins eftir að klára með sínum félagsliðum um alla álfuna. Það var létt yfir strákunum okkar á æfingu í Laugardalnum í dag enda lét sólin sjá sig í fyrsta sinn í manna minnum. Emil var vel rámur eftir að hafa misst röddina á ferðalaginu heim frá Ítalíu en var engu að síður mjög spenntur fyrir ævintýrinu framundan. „Þetta hljómar ótrúlega framandi,“ segir Emil um þá tilhugsun að vera að fara á HM. „Við erum að fara á HM í Rússlandi. Það er mikill spenningur fyrir því og tilhlökkun. Það er spenna líkamleg og andleg fyrir þetta mót. Þetta verður ótrúlega skemmtilegt.“ „Þetta hefur verið að magnast meira og meira. Maður var að reyna að klára leiktíðina með liðinu sínu vel eftir nokkuð litríkt tímabil. Ég náði svo að spila síðustu leikina sem var gott fyrir mig að halda takti og bara fyrir hausinn á mér. Ég var ánægður með það. Eftir það var HM það eina sem ég hugsaði um og það er það eina sem ég hugsa um.“Strákarnir á skokkinu í Laugardalnum og Emil með húfu fyrir aftan í sólinni.vísir/vilhelmFrændi fyndinn Emil fékk ekki jafnmikið að spila með Udinese og hann hefði viljað á tímabilinu. Hann byrjaði aðeins átta leiki í ítölsku A-deildinni en stóð sig vel þegar að hann spilaði. Jón Hjörtur Emilsson heitir drengur sem setti á Twitter áhugaverða tölfræði um gengi Udinese með og án Emils. Hún sýnir svart á hvítu, eins og búningar liðsins eru, að því gengur miklu betur með Emil í liðinu. „Við prentuðum þetta út og settum þetta á ísskápinn heima hjá okkur. Þetta var frændi minn var með þessa tölfræði. Það er gott að eiga góða að en tölfræðin er sönn. Þetta var fyndið,“ segir Emil og hlær rámum hlátri.Udi með og án Super í vetur. Udinese án Super Hallfredsson 3-2-15 = 11 stig í 20 leikjum Udinese með Super Hallfredsson 9-2-7 = 29 stig í 18 leikjum Og tryggir okkar mönnum áframhaldandi veru í Seria A í dag með MOTM - Super Hallfredsson#forzasuper — Jón Hjörtur Emilsson (@jonhjortur91) May 20, 2018Ótrúlega lærdómsríkt Hafnfirðingurinn fékk að spila síðustu tvo leiki tímabilsins sem báðir unnust og þar með bjargaði liðið sér endanlega frá falli en Udinese er annars ekki félag sem á að vera í fallbaráttu. Emil var ánægður með spila þessa tvo leiki til að fá smá takt í sinn leik. „Þetta tímabil í heild sinni var ótrúlega lærdómsríkt,“ segir miðjumaðurinn er hann gerir upp tímabilið fullt af hæðum og lægðum á Ítalíu. „Þetta var ekki skemmtilegasta fótboltatímabilið mitt en samt var ákveðin gleði sem fylgdi því í endann að hafa fengið að spila síðustu leikina og vera stór hluti af því að halda liðinu uppi. Maður verður alltaf að líta á jákvæðu hliðarnar.“ Það er margt sem fylgir því að spila fótbolta á Ítalíu þar sem skiptast á skin og skúrir með rosalegum öfgum. Eins og kom fram í þættinum Fyrir Ísland á Stöð 2 stóð Emil meira að segja einn uppi á móti forseta Udinese þegar að hann var búinn að gefast upp á endalausri hóteldvöl leikmanna. Hugsar bara um HM „Á Ítalíu er ástríðan rosaleg. Þetta fattar enginn fyrr en að hann kemur þangað. Ef að illa gengur er allt ömurlegt og mönnum hent inn á hótel. En, ef það gengur vel er ótrúlega gaman að vera þarna,“ segir Emil. „Þetta reynir auðvitað rosalega mikið á hausinn á mönnum og það gerir það hjá öllum. Það er mikil pressa á að gangi vel. Ég lenti þarna í smá rifrildi við forsetann en við urðum fínir vinir eftir á. Þetta er bara vinnan manns og því gerir maður hlutina bara 100 prósent. Það tekur smá orku á endanum er ég bara að hugsa um HM.“ Þrátt fyrir lítinn spiltíma, eða minni en að hann hefði kosið, er Emil ekkert að spá í hvort hann verði áfram í herbúðum Udinese næsta vetur. Nú er hann kominn í blátt og stefnan er sett á HM. „Ég er ekki einu sinni kominn svo langt. Ég er bara að pæla í að fara á HM og standa mig sem best. Mig langar að hjálpa fyrir liðinu. Við ætlum að gera þetta allir saman og eiga frábært heimsmeistaramót. Annað hugsa ég ekki um,“ segir Emil Hallfreðsson. Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að neðan.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira