Ferðamennirnir úrskurðaðir látnir Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. maí 2018 12:56 Að ósk aðstandenda verða nöfn fólksins ekki birt, að því er segir í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi. Vísir
Karl og kona á fimmtugsaldri sem flutt voru frá Villingavatni á sjúkrahús í Reykjavík í gær voru úrskurðuð látin í gærkvöldi. Fólkið var bandarískt og var á ferðalagi hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Í tilkynningu segir að að endurlífgunartilraunir hafi ekki borið árangur. Að ósk aðstandenda verða nöfn fólksins ekki birt. Rannsókn á slysinu stendur enn yfir en hana annast rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi og tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Sjá einnig: Ferðamennirnir voru að veiða í vatninu Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um slysið skömmu fyrir hádegi í gær. Þar kom fram að tveir erlendir ferðamenn hefðu fallið í Villingavatn syðst af Þingvallavatni og strax var ljós að um alvarlegt útkall var að ræða. Viðbragðsaðilar fundu fólkið eftir þónokkra leit í vatninu en það hafði verið við veiðar í vöðlum við Villingavatnsós. Slysið varð með þeim hætti að konunni skrikaði fótur og féll út í vatnið og maðurinn reyndi að bjarga henni en örmagnaðist. Þau voru flutt á sjúkrahús og síðar úrskurðuð látin.Fréttin hefur verið uppfærð og lokað fyrir athugasemdir. Vilji lesendur koma athugasemdum á framfæri er bent á ritstjórnarpóstinn, ritstjorn(hjá)visir.is.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fleiri fréttir „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Sjá meira