KSÍ verður með stuðningsmannasvæði fyrir næstu leiki í Dalnum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 31. maí 2018 16:45 Það verður vonandi stemning fyrir leik út á bílastæði. vísir/getty
KSÍ tilkynnti í dag að það verður boðið upp á stuðningsmannasvæði, Fan Zone, fyrir æfingaleiki karlalandsliðsins sem og fyrir leik kvennalandsliðsins gegn Slóveníu. Karlalandsliðið spilar við Noreg á laugardag og Gana þann 7. júní. Kvennalandsliðið tekur svo á móti Slóveníu þann 11. júní. Upphitun hefst tveimur klukkustundum fyrir leikina. Klukkan 18.00 fyrir leik strákanna gegn Noregi og Gana og klukkan 16.00 fyrir leik kvennaliðsins gegn Slóveníu. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Á svæðinu verður boðið upp á andlitsmálningu, hoppukastala auk þess sem Tólfan mætir á svæðið klukkutíma fyrir leik til að kynda undir stemningunni. Veitingasala verður á svæðinu, sala á Áfram Ísland varningi sem og salernisaðstaða. Skemmtunin er sett upp með þarfir yngri kynslóðarinnar í huga og eru fjölskyldur því sérstaklega hvattar til að mæta tímanlega til að njóta hennar sem best. Viðburðirnir verða staðsettir á bílastæðunum fyrir framan Laugardalsvöll og vegna þeirra verður hluti bílastæðanna lokaður. Fólk er beðið um að hafa það í huga þegar komið verður á völlinn að færri bílastæði verða í boði í Laugardalnum en venja er á landsleikjum og því um að gera að nýta almenningssamgöngur.
Fótbolti Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Enski boltinn hefst í kvöld Liverpool fær höfnun frá Brighton Aron Einar skoraði í fyrsta leik „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Mikael kom inn af bekknum í slæmu tapi gegn Benfica Sjá meira