Valskonur slógu FH örugglega út Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 2. júní 2018 15:49 Guðrún Karítas, til hægri, skoraði tvö mörk fyrir Val. vísir/valur
Valur mun spila til 8-liða úrslita í Mjólkurbikar kvenna eftir stórsigur á FH á Hlíðarenda í 16-liða úrslitunum í dag. Valskonur höfðu aðeins tapað einum leik í sumar fyrir þennan leik en FH-ingar eru aðeins með einn sigur úr fimm leikjum í deildinni til þessa. Liðin komu bæði inn í Mjólkurbikarinn í 16-liða úrslitum líkt og önnur lið í Pepsideildinni og höfðu því ekki spilað bikarleik til þessa á tímabilinu. Crystal Thomas skoraði fyrsta mark leiksins eftir 21 mínútu eftir gáleysi í varnarleik FH þar sem hún var óvölduð í teignum. Guðrún Karítas Sigurðardóttir bætti svo öðru marki Vals við rétt fyrir lok fyrri hálfleiks með glæsilegu skoti í fjærhornið. Crystal skoraði annað mark sitt og þriðja mark Vals strax á upphafsmínútum seinni hálfleiks. Guðrún Karítas skoraði sitt annað mark á 63. mínútu og kom Val í 4-0. Gestirnir úr Hafnarfirði náðu aðeins að klóra í bakkann undir lok leiks þegar þær fengu vítaspyrnu á 83. mínútu. Marjani Hing-Glover fór á punktinn og skoraði örugglega. Fleiri urðu mörkin ekki, 4-1 sigur Vals sem fer í 8-liða úrslit en FH situr eftir og keppir ekki meir í bikarnum í ár. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Sjá meira