Fjölskyldan fannst hangandi úr loftinu Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. júlí 2018 06:51 Nágrannar hópast saman við verslunina eftir að fregnir bárust af líkfundinum. BBC
Ellefu fjölskyldumeðlimir fundust látnir í húsi einu í indversku höfuðborginni Nýju-Delí - þar af eru tíu þeirra sagðir hafa hangið neðan úr þaki hússins. Kona á áttræðisaldri var sú eina sem lá á gólfinu. Búið var að kefla og binda saman hendur flestra hinna látnu. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvernig andlát þeirra bar að garði og hefur lögreglan ekki útilokað að um fjöldamorð kunni að vera að ræða. Talsmenn lögreglunnar segja hins vegar að á vettvangi hafi fundist vísbendingar um „dulræna athöfn.“ Er þar vísað til fjölda handskrifaðra bréfa sem fundust í húsinu sem sögð eru hafa ýmsar yfirnáttúrulegar og dulspekilegar vísanir. Málið er enn til rannsóknar, niðurstöður krufninganna liggja ekki fyrir og eru lögreglumenn að yfirheyra nágranna og yfirfara upptökur úr öryggismyndavélum.Gurcharan Singh gekk fram á líkin þegar hann ætlaði sér ða kaupa mjólk.BBCÍ frétt breska ríkisútvarpsins segir að fjölskyldan hafi rekið búð í hverfinu og hafst við í íbúð fyrir ofan verslunina. Maður sem ætlaði sér að kaupa mjólk í versluninni gekk fram á líkin á sunnudagsmorgun. „Þegar ég gekk inn í verslunina voru allar dyr opnar og líkin héngu neðan úr þakinu,“ er haft eftir mjólkurkaupandanum á vef BBC. Meðal hinna látnu eru tveir bræður ásamt eiginkonum þeirra og börnum, auk fyrrnefndrar konu á áttræðisaldri. Hundur fjölskyldunnar fannst á lífi. Líkfundurinn er sagður hafa vakið óhug í hverfinu - ekki síst vegna þess að hin látnu voru talin hamingjusöm og mikilvægur hluti nærsamfélagsins.
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sjá meira