Kína: Regnbogasilungur = Lax Stefán Ó. Jónsson skrifar 14. ágúst 2018 06:56 Eftirspurn eftir laxi hefur aukist mikið í Kína á síðustu árum. vísir/getty
Kínversk stjórnvöld hafa lýst því yfir að regnbogasilungur og lax séu nægilega skyldar tegundir til að þarlendir fisksalir megi selja þær báðar sem lax. Ákvörðunin var tekin eftir að fjöldi þarlendra neytendasamtaka kvartaði undan því sem þau kölluðu blekkingar. Lífsýnarannsóknir hafi bent til að mikið af þeim laxi sem seldur var í Kína væri í raun regnbogasilungur. Töluvert hærra verð fæst fyrir fyrrnefndu tegundina á alþjóðamörkuðum. Í stað þess að banna fisksölum að blekkja viðskiptavini sína ákvað kínverska fisksölusambandið, sem heyrir undir þarlenda landbúnaðarráðuneytið, að greiða götu þeirra. Allur fiskur af laxfiskaætt sé svo skyldur að í raun megi flokka hann allan sem lax. Úrskurðurinn hefur vakið mikla reiði á kínverskum samfélagsmiðlum þar sem myllumerkið #RegnbogasilungurVerðurLax hefur náð miklu flugi að sögn breska ríkisútvarpsins. Sala á laxi hefur aukist hratt í Kína á undanförnum árum og hafa kínverskir neytendur kvartað unda því að fá regnbogasilung í auknum mæli þegar þeir fara í fiskbúðina. Þeir hafa ekki síst áhyggjur af því innbyrða sníkjudýr þegar þeir leggja sér regnbogasilunginn sér til munns. Kínverska fiskeldissambandið gefur lítið fyrir þessar áhyggjur og segir að allur fiskur sem ræktaður er í Kína uppfylli ströngustu skilyrði.
Dýr Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira