Trylltist eftir samstuð við rútu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 31. ágúst 2018 22:51 Konan virðist hafa algjörlega misst stjórn á skapi sínu. Mynd/Samsett
Lögregla í Washington í Bandaríkjunum leitar nú að ökumanni sem trylltist eftir að hafa lent í samstuði við rútu. Ökumaðurinn, ung kona, keyrði ítrekað á rútubílstjórann sem reyndi að hefta för hennar eftir áreksturinn.Í frétt NBC Washington segir að konan hafi svínað á rútunni með þeim afleiðingum að bíllinn og rútan rákust saman. Segir í fréttinni að konan hafi misst stjórn á skapi sínu eftir að rútubílstjórinn sagði að hún væri „brjálaður ökumaður“. Í myndbandi sem sjá mér að neðan og tekið var á vettvangi má sjá hvernig konan mölvar rúðu í rútunni. Sest hún því næst upp í bíl sinn og ógnar ökumanni rútunnar sem tekið hafði sér stöðu fyrir framan bíl hennar á meðan hann hringdi á lögreglu. Sjá má hvernig konan hótar því að keyra á rútubílstjórann áður en hún stígur bensíngjöfina í botn með þeim afleiðingum að rútubílstjórinn kastast upp á bíl hennar áður en hann kastast af honum eftir nokkra vegalengd. Lögregla segist hafa upplýsingar um hver ökumaður bílsins sé og er leit að ökumanninum hafin.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Fleiri fréttir Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Sjá meira