Forseti Interpol sagður í haldi í Kína Vésteinn Örn Pétursson skrifar 6. október 2018 11:14 Ekkert hefur spurst til Hongwei síðan hann hélt til Kína seint í september. Vísir/AP
Talið er að forseta alþjóðalögreglunnar Interpol, Meng Hongwei, sé haldið í varðhaldi í Kína. Grunur leikur á um að kínversk yfirvöld séu með Hongwei í yfirheyrslum. Frá þessu greinir AFP-fréttastofan. Hongwei, sem gegnir einnig aðstoðarráðherrastöðu í kínversku ríkisstjórninni, hefur hvergi sést síðan hann hélt til Kína þann 25. september síðastliðinn en hann býr í Lyon í Frakklandi. Áður höfðu fjölmiðlar greint frá því að Hongwei hefði horfið 29. september en það hefur nú verið áréttað. Samkvæmt heimild sem stendur nálægt rannsókn frönsku lögreglunnar á hvarfi Hongwei eru ekki taldar nokkrar líkur á því að Hongwei hafi horfið áður en hann kom til Kína. Því er talið að þar sé hann niður kominn, en engar mögulegar ástæður fyrir því að kínversk yfirvöld myndu vilja yfirheyra Hongwei liggi þó fyrir að svo stöddu. Í tísti frá Interpol segist stofnunin vita af frásögnum fjölmiðla af meintu hvarfi Hongwei og sagði það vera mál fyrir viðeigiandi yfirvöld bæði í Frakklandi og Kína. Þá sagði einnig að Jürgen Stock, aðalritari Interpol, sæi um daglegan rekstur stofnunarinnar. Interpol myndi ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu. #NEWS - Media statement concerning INTERPOL President Meng Hongwei. pic.twitter.com/P46AeXsGiS — INTERPOL (@INTERPOL_HQ) October 5, 2018
Erlent Tengdar fréttir Forseti Interpol týndur eftir ferð til Kína Lögregla í Frakklandi hefur hafið rannsókn á hvarfinu. 5. október 2018 11:20 Mest lesið Prestur á Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Innlent Sektuð í gjaldfrjálsu stæði og sneri vörn í sókn Innlent Sögð vafin í ísraelska fánann og veifað um eins og verðlaunagrip Erlent Sótti kindabyssu eftir hótun um að skjóta fyrrverandi og fimm aðra Innlent Gekk berserksgang og beraði sig Innlent Síðasti fuglinn floginn Innlent Stjórnarformaður RÚV vill að Ísrael verði tafarlaust vikið úr Eurovision Innlent Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Innlent Fjögurra manna fjölskylda meðal látinna Erlent Símafrí en ekki símabann Innlent Fleiri fréttir Látinn eftir skotárás í Kaupmannahöfn Sögð vafin í ísraelska fánann og veifað um eins og verðlaunagrip Fjögurra manna fjölskylda meðal látinna Sendir þjóðvarðliðið til Chicago Segja stutt í samkomulag en sprengjum rignir enn Skoðanabróðir Orbans og Fico vinnur kosningar í Tékklandi Þrjátíu særðust í drónaárás á farþegalest Fjöldi án rafmagns vegna vonskuveðurs í Noregi Þrettán ára grunaður um aðild að skotárás Var að streyma á TikTok þegar hann féll til jarðar og lést Loftárásir í kjölfar ákalls Trumps Flogið á ný í München eftir mögulegt drónaflug Skipar Ísraelum að hætta að sprengja Hamasliðar tilbúnir að sleppa gíslum og láta völd af hendi Hótar helvíti á jörð samþykki Hamas ekki tillögurnar Vísa frá máli á hendur skipverjum sem voru taldir hafa slitið sæstrengi „Það vill enginn spila eftir reglum sem eru samdar annars staðar“ Rekja andlát dóttur að hluta til samsæriskenninga móður Fyrsta konan sem verður erkibiskupinn af Kantaraborg Diddy í fimmtíu mánaða fangelsisvist Einn hinna látnu skotinn af lögreglu og annar særður Finna mikla nálykt frá rústunum Bein útsending: Siglt áleiðis til Gasa Látinn fara eftir að hafa neitað Trump um sverð í eigu Eisenhower Segist breyttur maður og biðlar til dómarans Hamas liðar vilja ekki afvopnast Flugvellinum í München lokað vegna drónaumferðar Nafngreina árásarmanninn í Manchester Segist eiga í vopnuðum átökum við eiturlyfjasmyglara Árásin í Manchester skilgreind sem hryðjuverk Sjá meira
Forseti Interpol týndur eftir ferð til Kína Lögregla í Frakklandi hefur hafið rannsókn á hvarfinu. 5. október 2018 11:20