Arnór skoraði er Lillestrøm hélt sér uppi en Start féll Anton Ingi Leifsson skrifar 24. nóvember 2018 18:49 Arnór er hann gekk í raðir Lilleström frá Hammarby. mynd/lillestrøm
Norska úrvalsdeildin í knattspyrnu kláraðist í dag með heilli umferð en þar voru margir Íslendingar í eldlínunni. Það var ýmist grátur eða gleði hjá okkar mönnum í Noregi í dag. Matthías Vilhjálmsson var ónotaður varamaður hjá Rosenborg sem gerði 1-1 jafntefli við Bodo/Glimt á heimavelli en fyrir leikinn hafði Rosenborg tryggt sér titilinn. Þeir voru fimm stigum á undan Molde sem komu næstir. Emil Pálsson spilaði í 70 mínútur er Sandefjord tapaði 3-1 fyrir Molde á heimavelli en fyrir leikinn var Sandefjord fallið úr deildinni. Þeir voru átta stigum frá öruggu sæti er deildin kláraðist. Aron Sigurðarson sat á bekknum er Start tapaði 3-1 fyrir Haugesund en tapið gerir það að verkum að Start er aftur fallið niður í B-deildina eftir að hafa spilað í eitt ár meðal þeirra bestu. Annað Íslendingalið, Lillestörm, heldur sér hins vegar uppi eftir frábæran 2-0 sigur á Kristiansund þar sem Arnór Smárason skoraði fyrsta mark Lilleström. Lilleström endar í tólfta sætinu. Samúel Kári Friðjónsson var á bekknum hjá Vålerenga sem endaði í sjötta sæti norsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 sigur á Ranheim í lokaumferðinni í dag. Orri Sigurður Ómarsson spilaði í tuttugu mínútur fyrir Sarpsborg sem vann 2-0 sigur á Tromsö en Sarpsborg endar í áttunda sæti deildarinnar.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira