Innlent

Heilbrigðisráðherra vill skoða mál pólsks talmeinafræðings

Heimir Már Pétursson skrifar
Heilbrigðisráðherra segir nauðsynlegt að skoða mál talmeinafræðings frá Póllandi, sem ekki fær starfsleyfi á Íslandi þar sem enginn íslenskur yfirmaður getur staðfest íslenskukunnáttu hans. Talmeinafræðingurinn fékk upphaflega bráðabirgðaleyfi sem ekki hefur verið endurnýjað.

Pawel Bartoszek varaþingmaður Viðreisnar tók málið upp í fyrirspurnatíma á Alþingi í morgun. En Fréttablaðið greindi frá því í vikunni að Justyna Gotthardt, eini pólskumælandi talmeinafræðingurinn hér á landi, fái ekki fullgilt starfsleyfi frá Landlækni vegna þess að íslenskir talmeinafræðingar hvorki vilji né geti veitt Landlækni umsögn um tungumálakunnáttu hennar.

Í Fréttablaðinu kom fram að þetta þýddi að börn af pólskum uppruna fái talþjálfun á móðurmáli sínu ekki niðurgreidda hjá Sjúkratryggingum Íslands. En Gotthardt hefur engan íslenskan yfirmann sem lögin krefjast að votti íslenskukunnáttu hennar.

„Og því miður er þessi saga ekki einsdæmi. Ég þekki fleiri svona dæmi þar sem kerfið sem ráðherrann ber ábyrgð á er alls ekki að reyna að hjálpa fólki að öðlast réttindi í samræmi við menntun sína. Eiga erlendir menntaðir talmeinafræðingar, næringarfræðingar og sálfræðingar að skúra og afgreiða á börum á meðan kerfið japlar á umsóknum þeirra,” spurði Pawel.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagði málið anga samfélags sem lengst af hafi búið við eina menningu og eitt tungumál sem betur fer væri það að breytast.

„En sem betur fer erum við nú að fara inn í samfélag þar sem fjölmenning er viðurkennd og eftirsóknarverð,” sagði heilbrigðisráðherra. Samfélagið þyrfti því að aðlaga lög, reglugerðir og framkvæmd mála enda hafi menntamálaráðherra boðað lagabreytingar í þessa átt.

Skoða þurfi þessi mál í heild og gæta öryggishagsmuna sjúklinga t.d. varðandi heilbrigðisstarfsmenn.

„En ég er algerlega sammála tóninum í athugasemd og fyrirspurn háttvirts þingmanns og tel ástæðu til að skoða málið betur,” sagði Svandís Svavarsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×