Hafa horft upp á Eyjamenn lyfta þremur bikurum á árinu og mæta þeim í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2018 17:00 Eyjamenn fagna deildarmeistaratitlinum eftir sigur á Fram. Vísir/Valli
Íslands-, bikar- og deildarmeistarar ÍBV taka á móti Fram í elleftu umferð Olís deild karla í kvöld. Eyjamenn hafa tapað fjórum leikjum í röð og aðeins fagnað einum sigri í síðustu átta leikjum sínum. Sá sigur kom á móti Akureyri 21. október. Framarar kynntust heldur betur velgengi ÍBV á eigin skinni á árinu 2018 því ÍBV-liðið vann þrjá af fjórum bikurum sínum eftir sigur á Fram. ÍBV vann bikarkeppnina eftir 35-27 sigur á Fram í bikaúrslitaleik í Laugardalshöllinni 10. mars. ÍBV vann deildarmeistaratitilinn eftir 34-33 sigur á Fram í lokaumferð Olís deildarinn 21. mars. ÍBV vann meistarakeppni HSÍ eftir 30-26 sigur á Fram í Vestmannaeyjum 5. september. Eyjamenn munu örugglega ekki fagna minna í kvöld takist þeim að landa langþráðum sigri og enda fjögurra leikja taphrinu. Framarar upplifðu það sjálfir að enda langa taphrinu á dögunum því Safamýrarliðið var búið að fjórum leikjum í röð þegar liðið vann 30-26 sigur á Aftureldingu í síðasta leik. Það er heilmikið undir í kvöld í baráttunni í neðri hluta deildarinnar. Fram er einu stigi og einu sæti á undan ÍBV fyrir leikinn og vinni Eyjamenn hafa liðin sætaskipti. Leikur ÍBV og Fram hefst klukkan 18.30 en fjallað verður um hann í Seinni bylgjunni í kvöld sem hefst strax eftir leik Vals og Hauka sem er sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 19.30.
Olís-deild karla Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Besta tenniskona heims tekur þátt í nýrri „Baráttu kynjanna“ Sport Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Enski boltinn Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Fótbolti Fleiri fréttir Bikarmeistararnir fara norður Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Forðuðu sér frá bráðsmitandi óléttu í Fram Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Kærastan tók eftir því að eitthvað var að KA/Þór gerði jafntefli við botnliðið Valskonur unnu 24 marka sigur og ÍR upp í annað sætið „Fannst þetta verða svartara og svartara“ Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Andri kallaður inn í hópinn fyrir meiddan Hauk Arnór Snær snýr aftur heim Besta handboltadeild heims missir aðalstyrktaraðila sinn Grafalvarleg staða: „Þurfum að fara í sársaukafullar aðgerðir“ ÍR áfram eftir sigur í Mosfellsbæ Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 42-31 | Þrot í Þýskalandi Tilkynnti um óléttu og nýjan samning á sama tíma Patrekur hættur eftir dapurt gengi Stjörnunnar Rekinn fyrir ummæli sín um krabbameinssjúka handboltagoðsögn Janus Daði myndaður í heimsókn hjá Barcelona Epicbet sýni handboltann í leyfisleysi: „Enda ólöglegar síður“ Teitur inn í landsliðið Gísli bjó til meira en þriðjung markanna Haukur magnaður í sigri Löwen Blær skoraði þrjú og lagði upp jöfnunarmarkið KA/Þór sótti sigur gegn Fram og stigalausar Stjörnukonur Fram kjöldró HK og spenna í Eyjum Meistararnir unnu gegn ÍBV og ÍR hafði betur gegn Selfyssingum Sjá meira