Juventus vann borgarslaginn í Tórínó Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 15. desember 2018 21:45 Cristiano Ronaldo skoraði eina mark leiksins Vísir/Getty Juventus lagði Torino í nágrannaslagnum um Tórínó í kvöld. Cristiano Ronaldo skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu. Nokkuð jafnræði var með liðinum í leiknum. Markalaust var í fyrri hálfleik en það dróg til tíðinda á 70. mínútu leiksins þegar Juventus fengu vítaspyrnu. Cristiano Ronaldo steig á punktinn og skoraði. Reyndist það vera eina mark leiksins og Juventus því með enn einn sigurinn í vetur. Juventus er nú komið með ellefu stiga forystu á toppi deildarinnar á meðan nágrannar þeirra úr Tórínó borg, Torino situr í 6. sætinu. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti