Þriggja ára drengur fannst á lífi eftir að hafa horfið úr garði ömmu sinnar Sylvía Hall skrifar 25. janúar 2019 20:26 Casey hafði verið úti að leika ásamt tveimur öðrum börnum þegar hann skilaði sér ekki heim. Facebook
Þriggja ára drengur, Casey Hathaway, hvarf á þriðjudag úr garði ömmu sinnar í Norður-Karolínu fylki í Bandaríkjunum eftir að hafa leikið sér þar ásamt tveimur öðrum börnum. Leit að Hathaway hófst eftir að hann skilaði sér ekki heim með hinum börnunum. Amma drengsins hafði leitað hans í rúmar 45 mínútur ásamt áhyggjufullum nágrönnum þegar ákveðið var að tilkynna hvarfið til lögreglu. Í kjölfarið hófst umfangsmikil leit við slæmar aðstæður en mikil rigning og vindur var á svæðinu. Áhersla var lögð á að leita í skóglendi nærri heimili ömmunnar. „Þegar fór að rökkva varð mjög óhugnanlegt þarna. Ég get ekki ímyndað mér þriggja ára barn þarna,“ sagði Donna Harris, einn sjálfboðaliða, í samtali við WTVD. Leitaraðilar sögðu drenginn illa klæddan og höfðu áhyggjur af skurðum og holum á svæðinu. Á fimmtudagskvöld fundu leitaraðilar drenginn og var hann fluttur til aðhlynningar á sjúkrahúsi. Hann var við góða heilsu þegar hann fannst og segja fjölskyldumeðlimir hann vera glaðan og rólegan miðað við aðstæður. „Casey er við góða heilsu, brosandi og talandi. Hann segist hafa verið með skógarbirni í tvo daga. Guð gaf honum vin til að tryggja öryggi hans,“ skrifaði Breanna Hathaway, frænka drengsins, á Facebook-síðu sína og sagði þetta vera kraftaverk.
Bandaríkin Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira