Fékk ekki að hafa bænaprest sér við hlið við aftöku Samúel Karl Ólason skrifar 8. febrúar 2019 14:03 Dominique Ray var tekinn af lífi í nótt eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna meinaði honum að hafa bænaprest viðstaddan aftökuna. Vísir/AP
Yfirvöld Alabama tóku í nótt mann af lífi eftir að honum hafði verið meinað að vera með bænaprest sér við hlið. Domineque Ray var íslamstrúar en prestum er reglulega leyft að vera viðstaddir aftökur kristinna manna í Alabama. Málið fór fyrir Hæstarétt Bandaríkjanna þar sem Ray sagði ríkið vera að brjóta gegn trúfrelsi sínu. Ray var dæmdur til dauða árið 1999 fyrir að nauðga og myrða táningsstúlkuna Tiffany Harville. Marcus Owden, sem einnig var dæmdur fyrir morðið situr í lífstíðarfangelsi. Fimm af níu hæstaréttardómurum sögðu aftökuna mega fara fram án bænaprests, án þess þó að færa mikil rök fyrir niðurstöðunni, samkvæmt New York Times. Hinir fjórir dómararnir sögðu meirihlutann hafa „innilega rangt fyrir sér“.Dómarinn Elena Kagan skrifaði í niðurstöður minnihlutans að samkvæmt reglum Alabama mættu fangar hafa kristna presta sér við hlið en séu þeir annarrar trúar stendur þeim ekki til boða að hafa prest þeirrar trúar viðstadda. Hún sagði það brjóta gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna sem segir að ríkið megi ekki gera upp á milli trúarbragða. Forsvarsmenn Alabama segja málið snúa að öryggi. Prestar séu starfsmenn dómsmálayfirvalda og kom til greina að presturinn yrði ekki í herberginu þegar Ray yrði tekinn af lífi. Hann fór þó fram á að hafa bænaprest sér við hlið. Embættismenn sögðu það ekki koma til greina og buðu honum að fá bænaprest í heimsókn skömmu fyrir aftökuna og að hann mætti fylgjast með úr næsta herbergi. Hann mætti þó ekki vera í herberginu við aftökuna. Lögmaður Ray sagði bænaprest sem hefur reglulega heimsótt fanga sem hafa verið dæmdir til dauða hafa farið í gegnum öryggisskoðun því hefði hann átt að vera viðstaddur aftökuna. Hann segir ljóst að um mismunun hafi verið að ræða.
Bandaríkin Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Fleiri fréttir Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Sjá meira