Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Kjartan Kjartansson skrifar 14. september 2026 11:15 Glittir í bandaríska þinghúsið í gegnum kolareyk í Washington-borg í Bandaríkjunum. Kolabruni er mest mengandi tegund jarðefnaeldsneytisnýtingar, bæði hvað varðar gróðurhúsalofttegundir og eiturefni. Vísir/EPA Bandaríkjastjórn ætlar að afnema reglur um losun kola- og gasorkuvera á gróðurhúsalofttegundum. Losun bandarískra orkuvera er ein allra stærsta einstaka uppspretta gróðurhúsalofttegunda á jörðinni.
New York Times hefur eftir heimildarmönnum sínum að Umhverfisstofnun Bandaríkjanna ætli að fella úr gildi losunarreglur sem settar voru í forsetatíð Baracks Obama og Joe Biden. Lee Zeldin, forstjóri stofnunarinnar, ætli sér að tilkynna þetta á fundi orkumálaráðherra G20-ríkja í Houston sem hefst í dag. Kola- og gasorkuver eru næststærsta uppspretta losunar gróðurhúsalofttegunda í Bandaríkjunum. Umhverfisverndarsinnar benda á losun þeirra ein og sér kæmist í fimmta sæti á lista landa sem losa mest af gróðurhúsalofttegundum í heiminum. Ríkisstjórn Donalds Trump og Repúblikanaflokksins, sem viðurkenna ekki vísindalega þekktar orsakir og afleiðingar loftslagsbreytinga, hefur þegar afnumið reglur um útblástur bíla. Hún felldi einnig úr gildi ákvörðun Umhverfisstofnunarinnar sem var lagalegur grundvöllur heimildar hennar til þess að setja reglur um losun gróðurhúsalofttegunda. Leyfi dómstólar nýjustu ákvörðun stjórnarinnar um að hætta að setja reglur um útblástur orkuvera að standa gæti það reynst nær ómögulegt fyrir seinni ríkisstjórnir að setja slíkar reglur aftur. Bandaríkin eru sögulega stórtækasti losandi gróðurhúsalofttegunda í heiminum þó að Kína hafi nýlega farið fram úr þeim í árlegri losun. Þau bera þannig mesta ábyrgð á þeirri hnattrænu hlýnun sem þegar hefur átt sér stað á jörðinni frá upphafi iðnbyltingar. Kostnaður fyrirtækja settur ofar lýðheilsu Undir stjórn Trump og repúblikana hefur Umhverfisstofnun Bandaríkjanna helgað sig hagsmunum stóriðju og fyrirtækja. Stofnunin er þannig hætt að taka tillit til lýðheilsu í kostnaðargreiningu á reglugerðum um loftgæði. Hún tekur nú aðeins tillit til kostnaðar fyrirtækja við að fylgja reglum. Reglurnar um losun kola- og gasorkuvera sem Trump-stjórnin ætlar nú að afnema áttu að koma í veg fyrir á annað þúsund ótímabærra dauðsfalla og stuðla að alls kyns öðrum lýðheilsubótum fyrir almenning sem býr í nágrenni slíkra orkuvera. Áfram verða einhverjar takmarkanir á hversu mikið kvikasilfur, arsen og önnur eiturefni jarðefnaeldsneytisorkuver mega spúa út í umhverfið en Trump-stjórnin hefur þegar rýmkað heimildir þeirra til þess að losa kvikasilfur. Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna varaði við því fyrr í þessum mánuði að það væri nú borin von að mannkynið næði metnaðarfyllra markmiði Parísarsamningsins um að takmarka hnattræna hlýnun við 1,5°C. Menn þyrftu nú að draga hratt úr losun gróðurhúsalofttegunda og reyna síðar að vinda ofan af hlýnun með tækni til þess að fanga kolefni úr lofti og farga sem er enn ákaflega skammt á veg komin.
Bandaríkin Donald Trump Loftslagsmál Jarðefnaeldsneyti Orkumál Umhverfismál Heilbrigðismál Loftgæði Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Sjá meira