Jafntefli í háspennuleik á Hlíðarenda Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 12. febrúar 2019 21:12 Kristín Guðmundsdóttir átti stórleik í liði Stjörnunnar vísir/vilhelm
Stjarnan tók stig af toppliði Vals í Olísdeild kvenna þegar liðin mættust í Origohöllinni að Hlíðarenda í kvöld. Haukar unnu öruggan sigur á Selfossi. Leikurinn á Hlíðarenda var spennandi allt frá upphafi. Stjarnan náði yfirhöndinni í fyrri hálfleik en munurinn á liðunum varð þó aldrei meiri en tvö mörk fyrr en á 24. mínútu þegar Þórey Anna Ásgeirsdóttir kom Stjörnunni í 6-9. Þá tók Valur áhlaup og náði að jafna metin áður en liðin gengu til búningsherbergja, staðan 9-9 í hálfleik. Valur skoraði fyrstu tvö mörk seinni hálfleiks og tók forystuna. Valskonur héldu yfirhöndinni þrátt fyrir að leikurinn væri áfram í járnum. Gestirnir úr Garðabæ eltu allan seinni hálfleikinn þar til á 59. mínútu þegar Kristín Guðmundsdóttir kom þeim yfir í 23-22. Íris Ásta Pétursdóttir náði að jafna á loka metrunum, lokatölur 23-23 og liðin skiptu með sér stigunum í háspennu leik. Kristín Guðmundsdóttir átti stórleik fyrir Stjörnuna með 10 mörk, hjá Val var Sandra Erlingsdóttir atkvæðamest með 5. Í Hafnarfirði höfðu Haukar betur gegn Selfossi 27-20. Heimakonur í Haukum tóku strax forystuna og héldu henni þar til um miðjan fyrri hálfleik þegar Selfyssingar jöfnuðu og Perla Ruth Albertsdóttir kom þeim svo yfir 7-8. Haukar tóku áhlaup undir lok hálfleiksins og skoruðu fimm mörk í röð, staðan í hálfleik var 15-11 fyrir Hauka. Selfyssingar skoruðu bara eitt mark á fyrstu átta mínútum seinni hálfleiks og þar með var í raun út um leikinn, Haukar voru komnir með átta marka forskot sem þær létu ekki af hendi. Þegar upp var staðið var sigurinn mjög öruggur.
Olís-deild karla Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira