Árásarmaður sem streymdi myndbandi af sjálfum sér myrða fólk í annarri moskunni nafngreindi sjálfan sig og sagðist vera 28 ára gamall Ástrali. Lögreglan í Christchurch staðfesti ekki hvort að hann sé maðurinn sem hefur verið ákærður fyrir morð á blaðamannafundi fyrr í dag.
Þrír aðrir voru handteknir með skotvopn nærri moskunum en ekki liggur fyrir hvort eða hvernig þeir tengjast fjöldamorðinu. Lögreglan fann einnig það sem eru taldar heimatilbúnar sprengjur á bílum. Mikil viðbúnaður er í Christchurch og víðar á Nýja-Sjálandi í kjölfar voðaverkanna.
Af þeim sem létust féll 41 í al-Noor-moskunni á Deans-stræti og átta í Linwood-moskunni austan við miðborgina, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Auk þeirra eru 48 sagðir liggja særðir á sjúkrahúsi borgarinnar. Á meðal þeirra eru ung börn með skotsár.
Greint hefur verið frá því að mögulega séu Indverjar og Bangladessar á meðal þeirra látnu.
Nýsjálenska lögreglan greindi frá því að hún hefði rýmt svæði í kringum fasteign sem er talin tengjast árásinni í borginni Dunedin, suður af Christchurch.
1/2 Police are currently in attendance at a property on
— New Zealand Police (@nzpolice) March 15, 2019
Somerville Street, Dunedin. This is a location of interest in relation to the
serious firearms incident in Christchurch today.
Evacuations of properties in the immediate area have taken place
as a precaution.
Yfirlýsingu mögulega ætlað að afvegaleiða
Myndbandið af hluta árásanna fór sem eldur um sinu um netið. Lögreglan á Nýja-Sjálandi hefur hvatt fólk til þess að dreifa því ekki frekar. Á því sást maðurinn skjóta á gesti moskunnar, vopnaður hálfsjálfvirkum haglabyssum og riffli.Svo virðist sem að maðurinn hafi verið virkur í netsamfélögum hægriöfgamanna. Tuga blaðsíðna löng stefnuyfirlýsing sem hann á að hafa birt fyrir árásina er full af lofi um aðra öfgamenn og morðingja, þar á meðal norska fjöldamorðingjanna Anders Behring Breivik.
Stefnuyfirlýsingin virðist hins vegar einnig full af vísunum í minni [e. Meme] sem eru vinsæl í vissum afkimum netsins. Hlutum hennar virðist gagngert hafa verið ætlað að afvegaleiða eða fífla lögreglu og fjölmiðla um raunverulegar hvatir og skoðanir morðingjans.
Ef mark er takandi á yfirlýsingunni virðist árásarmaðurinn aðhyllast rasískar hægriöfgaskoðanir sem ganga út á að múslimar séu að taka yfir vestræn samfélög og útrýma hvítu fólki.