Árlega byssusýningin haldin um helgina Karl Lúðvíksson skrifar 14. mars 2019 10:30 Byssusýningin er haldin árlega Mynd úr safni
Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri, sem í ár verður í samvinnu við verslunina Hlað, verður haldin laugardaginn 16. og sunnudaginn 17. mars. Sýningin verður sem fyrr í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 Stokkseyri og eins og áður er mikið að skoða og margt að sjá. Það sem verður meðal annars um að vera er t.d. kynning frá Hjálmar í Hlað en hann og hans félagar ætla að sýna úrval skotvopna og búnað til skotveiða ásamt sjónaukum og aukabúnaði. Fjölbreytt úrval skotvopna verður til sýnis, haglabyssur, rifflar, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu tengdu skotveiðum m.a úr einkasöfnum. Hartmut Liedtke verður á staðnum með sérstaka kynningu á sjónaukum frá Blaser í Þyskalandi sem er nýjung hérlendis. Kynntir verða rifflar frá Blaser, Sauer, haglabyssur frá Marocchi og Blaser, einnig sjónaukar frá Zeiss og Meopta ásamt hljóðdeyfum frá Hausken, Devik og Freyr, endurhleðsluvörum frá Hornady, Redding, Lyman, Berger Bullets og fl. Skotvís verður með kynningu á sinni starfsemi og Bogveiðifélag Íslands verður einnig með kynningu á sinni starfsemi og sýnir búnað tengdum bogveiðum ofl. Gestur byssusýningar í ár er Óskar Elías Sigurðsson uppstoppari frá Vestmannaeyjum. Hann verður með kynningu á sínum verkum og verðu þar margt fallegt að sjá af uppstoppuðum dýrum. Einnig verða til sýnis skotvopn og munir frá Sverri Scheving Thorsteinssyni, Sigurði Ásgeirssyni, Einari frá Þverá, Sveini Einarssyni frv.veiðistjóra, Sigmari B. Haukssyni og Drífu-haglabyssur frá Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík svo eitthvað sé nefnt. Byssusýning Veiðisafnsins er landsþekkt og er aldrei eins á milli ára og sýningin í ár er þar engin undantekning.
Mest lesið Veiðikvöld hjá SVFR - Nesveiðar! Veiði Að prófa eitthvað nýtt í litlu vatni Veiði Black Ghost sterk í Urriðan Veiði Starir taka við sölu á Nessvæðinu í Aðaldal Veiði Lífleg veiði við Hraun í Ölfusi Veiði Veiðiflugur með hnýtingarnámskeið í janúar Veiði Frábært í Elliðánum en veiðiþjófar stálust í Fossinn Veiði Góðar göngur í Úlfarsá Veiði Sumarhátíð Veiðihornsins um helgina Veiði Hátt í 40% minni veiði í Blöndu milli ára Veiði