Mikilvægur sigur Alfreðs og Aron skoraði í sigri Start Anton Ingi Leifsson skrifar 14. apríl 2019 18:06 Alfreð í leik með Augsburg. vísir/getty
Alfreð Finnbogason spilaði í 83 mínútur er Augsburg vann 3-1 útisigur á Eintracht Frankfurt í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Augsburg skipti um þjálfarateymi í vikunni en Martin Schmidt náði sigri í sínum fyrsta leik í stjórastólnum. Augsburg er í fjórtánda sæti deildarinnar með 28 stig. Arnór Ingvi Traustason var í byrjunarliði Malmö sem vann 2-0 sigur á Östersunds í sænsku úrvalsdeildinni en þetta var fyrsti sigur Malmö í fyrstu þremur leikjunum. Arnór Ingvi var tekinn af velli á 85. mínútu en Marcus Antonsson og Markus Rosenberg skoruðu mörk Malmö sem er í sjöunda sæti sænsku deildarinnar. Aron Sigurðarson skoraði fyrra mark Start sem vann 2-1 sigur á Raufoss í norsku B-deildinni í knattspyrnu. Aron spilaði fyrstu 82 mínúturnar og Kristján Flóki Finnbogason 59 mínútur en Start er með sex stig eftir þrjá leiki. Ögmundur Kristinsson fékk á sig eitt mark er Larissa gerði 1-1 jafntefli við topplið PAOK í grísku úrvalsdeildinni. Sverrir Ingi Ingason sat allan tímann á bekknum hjá PAOK sem er langleiðina búið að tryggja sér titilinn. Larissa er í 10. sætinu. Rostov vann 2-1 sigur á Spartak Moskvu í rússnesku úrvalsdeildinni. Ragnar Sigurðsson spilaði allan tímann í vörn liðsins en Björn Bergmann Sigurðarson spilaði síðustu tólf mínúturnar. Rostov er í 6. sæti deildarinnar.
Fótbolti Mest lesið Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Körfubolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Fótbolti Fleiri fréttir Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Sjá meira