Suðurkóreski tæknirisinn Samsung hefur innkallað alla þá Galaxy Fold-snjallsíma sem sendir höfðu verið til gagnrýnenda og tæknibloggara. Reuters greindi frá í gær og hafði eftir heimildarmönnum.
Fold er á meðal fyrstu samanbrjótanlegu farsímanna. Síminn er útbúinn litlum skjá á framhlið en mun stærri skjá þegar hann er opnaður líkt og um veski sé að ræða.
Tækniblaðamenn og -bloggarar hafa allmargir greint frá því undanfarna daga að innri skjárinn eyðileggist annaðhvort við minnsta áreiti eða jafnvel af algjörlega óljósum ástæðum. Skjárinn hefur til að mynda brotnað, bólgnað eða hætt að virka án sýnilegra galla.
Síminn átti að koma á markað nú í vikunni en Samsung hefur frestað því til þess að rannsaka skjágallann. Svo virðist sem núningur í hjörum símans valdi skjátjóninu.
Innkalla alla Galaxy Fold

Tengdar fréttir

Galaxy Fold fær misgóðar viðtökur
Það er óhætt að segja að síminn fái misgóðar viðtökur og hafa nokkur tæki af þeim fáu sem voru send út brotnað eða bilað. Blaðamennirnir eru þó flestir sammála um að samanbrjótanlegir símar séu framtíðin.