Ráðuneytin telja ekki ástæðu til að lengja skipunartíma seðlabankastjóra Kristinn Ingi Jónsson skrifar 15. maí 2019 07:30 Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Fréttablaðið/Vilhelm
Forsætisráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið telja ekki ástæðu til þess að lengja skipunartíma seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra úr fimm árum í sex eða sjö ár, líkt og Seðlabankinn hefur lagt til. Ráðuneytin benda á að skipunartíminn hafi verið styttur með lagabreytingu árið 2009 með það að markmiði að samræma skipunartíma embættismanna innan Seðlabankans annars vegar og skipunartíma annarra embættismanna ríkisins hins vegar. Í umsögn Seðlabankans við frumvarp um sameiningu bankans og Fjármálaeftirlitsins, sem nú liggur fyrir Alþingi, er bent á að í ljósi fjölgunar varaseðlabankastjóra – en frumvarpið gerir ráð fyrir að ráðherra skipi seðlabankastjóra og þrjá varaseðlabankastjóra til fimm ára í senn – geti takmarkaður skipunartími leitt til þess að erfitt verði að skipa í stöðurnar, enda sé þörf á ákveðinni hæfni til að gegna embættunum. „Tíðni breytinga á því hverjir sitji í stólum seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra eykst eftir því sem skipunartíminn er styttri og hópur hæfra einstaklinga til að skipa þær þarf að vera stærri,“ segir Seðlabankinn. Í þessu sambandi verði jafnframt að hafa í huga að skipunartími seðlabankastjóra sé almennt lengri í þeim ríkjum sem við berum okkur gjarnan saman við. Í nýlegu minnisblaði sem forsætisráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið tóku saman er þessu sjónarmiði Seðlabankans hins vegar hafnað, eins og áður sagði.
Birtist í Fréttablaðinu Seðlabankinn Stjórnsýsla Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Sjá meira