Beckenbauer þráir ekkert heitar en að fá Klopp til Bayern Anton Ingi Leifsson skrifar 4. júní 2019 10:00 Klopp í fagnaðarlátum Liverpool eftir sigurinn í Meistaradeildinni. vísir/getty
Þýska goðsögnin Franz Beckenbauer heldur áfram að lýsa yfir áhuga sínum að fá Jurgen Klopp, stjóra Liverpool, til Bayern Munchen einn daginn. Beckenbauer er goðsögn hjá Bayern en hann vill sjá Þjóðverjann snúa aftur til heimalandsins og taka við Bayern. Klopp er þó með samning hjá Liverpoool til 2022 og líkur eru á að hann framlengi þann samning. „Ég þrái ekkert heitar en að sjá Klopp koma til Bayern einn daginn. Það myndi henta vel,“ sagði Beckenbauer í samtali við þýska dagblaðið Bild. „Klopp kom með nýjan stíl af fótbolta til Þýskalands. Hann byrjaði með hann hjá Dortmund og hefur haldið sínu striki hjá Liverpool.“ Þýska goðsögnin setur spurningarmerki við það af hverju Klopp ætti að dvelja svo lengi á Englandi og segir að það krefjist mikillar orku að starfa þar. „Störf á Englandi ræna þig allri orku. Sem stjóri í ensku úrvalsdeildinni hefur þú meiri ábyrgð en þjálfari í Þýskalandi. Þar eru tvær bikarkeppnir og fleiri leikir í deildinni.“ Klopp segir í samtali við sama blað að honum líki vel við Beckenbauer en hann sé ekki á leið burt frá Englandi. „Mér líkar vel við Beckenbauer og honum líkar vel við mig en ég er með langtímasamning við Liverpool. Stöðurnar hjá Bayern og Dortmund eru góðar en hvað gerist eftir fimm ár eða meira veit ég ekki,“ sagði Klopp.
Fótbolti Mest lesið Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti Grindavík - KR | Íslandsmeistararnir hefja titilvörnina Körfubolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leik lokið: Njarðvík - Tindastóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima Fótbolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Fleiri fréttir Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Sjá meira