Reikna með Kane en vita ekki hvenær Sindri Sverrisson skrifar 9. október 2026 14:46 DeAndre Kane hefur ekki verið allt of upptekinn að því að svara í símann. Þeir Daniel Mortensen verða ekki með Íslandsmeisturunum í kvöld. vísir/Sigurður Ingi Pálsson Grindvíkingar reikna með því að DeAndre Kane komi innan tíðar til landsins og verði með Íslandsmeisturunum í Bónus-deildinni í körfubolta í vetur. Hann verður þó ekki með í stórleiknum gegn bikarmeisturum KR í 1. umferðinni í kvöld. „
Þetta er allt í vinnslu,“ segir Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, um málefni Kane. Á miðvikudaginn greindi Jóhann frá því að Kane væri enn ekki kominn til landsins og að raunar hefði ekkert náðst í hann síðustu daga. Því ríkti óvissa um framhaldið og að Grindvíkingar væru farnir að huga að því hvað yrði gert ef Kane kæmi ekki. Í dag segir Jóhann hins vegar reiknað með því að Kane spili með Grindavík í vetur. Hann gat þó ekki svarað því hvenær Kane kæmi. „Við erum bara með fólk að vinna í þessu og hann er væntanlegur til landsins, vonandi sem fyrst.“ Íslandsmeistararnir mæta svo sannarlega lemstraðir til leiks í kvöld en staðan er þó skárri en þegar þeir steinlágu gegn KR-ingum í Meistarakeppni KKÍ um síðustu helgi. Jeremy Pargo og Unnsteinn Rúnar Kárason verða nefnilega með í kvöld en Daniel Mortensen missir af fyrstu leikjum tímabilsins vegna meiðsla og Ólafur Ólafsson gæti orðið frá keppni fram að áramótum vegna meiðsla. Unnsteinn Rúnar Kárason og Jeremy Pargo voru í borgaralegum klæðum síðasta laugardag þegar Grindavík steinlá gegn KR í Meistarakeppni KKÍ. Þeir verða með í kvöld.vísir/Guðmundur Pargo, lykilmaðurinn í sigri Grindavíkur í úrslitakeppninni síðasta vor, fylgdist með leiknum síðasta laugardag í borgaralegum klæðum en það var vegna þess að hann hafði flogið til landsins þá um morguninn. „Staðan mætti alveg vera betri. Daniel og Ólafur eru auðvitað ekki með en Unnsteinn og Pargo verða með svo þetta mun líta betur út en á laugardaginn,“ segir Jóhann. Leikur Grindavíkur og KR er á Sýn Sport Ísland í kvöld klukkan 19:30. Strax að leik loknum er Bónus Körfuboltakvöld á dagskrá.
Bónus-deild karla UMF Grindavík Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Sjá meira