Stórauka undirbúning fyrir útgöngu án samnings Kjartan Kjartansson skrifar 29. júlí 2019 13:00 Raab var Brexit-ráðherra í ríkisstjórn Theresu May en er nú utanríkisráðherra Boris Johnson. Vísir/EPA
Dominic Raab, utanríkisráðherra Bretlands, segir að ríkisstjórn Boris Johnson stórefli nú undirbúning fyrir möguleikann á útgöngu úr Evrópusambandinu án samnings í lok október. Hann telur mun auðveldara að ná hagstæðum samningum við sambandið eftir slíka útgöngu. Forysta Evrópusambandsins hefur gefið það út að hún sé ekki til viðræðu um verulegar breytingar á útgöngusamningi sem hún gerði við fyrri ríkisstjórn Theresu May. Johnson og aðrir harðir Brexit-sinnar vilja að ákvæði um svonefnda írska baktryggingu verði fellt úr samningnum. Raab segir að Johnson forsætisráðherra hafi skipað ríkisstjórninni að „forþjöppudrífa“ undirbúning fyrir útgöngu án samnings, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Segir hann baktrygginguna ólýðræðislega og að afnema verði ákvæðið. Johnson muni ekki taka upp viðræður við ESB nema sambandið fallist á að fella niður baktrygginguna. „Þó að það verði áhætta fyrir alla aðila af þessu [útgöngu án samnings], held ég að möguleikinn á að koma til baka og tryggja góðan samning fyrir Bretland verði auðveldari eftir að við göngum út, ef það verður tilfellið, og ástæðan er sú að við gerum það þá sem sjálfstætt þriðja ríki og verðum þá minna undir kröfur og einhliða tilskipanir Evrópusambandsins seld en við erum nú,“ sagði Raab í viðtali.
Bretland Brexit Evrópusambandið Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fleiri fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Sjá meira