Reyndi að stinga lögreglu af á vespu Kristín Ólafsdóttir skrifar 29. júlí 2019 06:32 Mikið var um tilkynningar vegna hávaða frá heimahúsum í gærkvöldi og nótt. Vísir/Vilhelm
Lögregla hafði í gærkvöldi afskipti af tveimur ungmennum á vespu við Seljaskóga í Breiðholti. Þegar lögregla gaf stöðvunarmerki með bláum ljósum reyndi ökumaðurinn að aka burt af vettvangi en stöðvaði svo skömmu síðar. Í dagbók lögreglu segir að vespan hafi verið óskráð og ökumaðurinn réttindalaus. Málið var afgreitt með aðkomu foreldra. Þá var lögreglu tilkynnt um mann í annarlegu ástandi á áttunda tímanum í gærkvöldi þar sem hann var að sparka í bíla og annað sem á vegi hans varð. Maðurinn var handtekinn og vistaður sökum ástands í fangageymslu lögreglu. Ekki hlaust sjáanlegt tjón af völdum mannsins. Hann vildi ekki segja til nafns og er grunaður um vörslu fíkniefna og brot á lögreglusamþykkt, auk fleiri brota. Skömmu eftir klukkan sex í gær var tilkynnt um umferðaróhapp á Reykjanesbraut í Kópavogi. Í dagbók lögreglu segir að annar ökumaðurinn hafi verið ölvaður. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn málsins. Á tíunda tímanum var tilkynnt um eld í bifreið við Seljaskóla, líkt og Vísir greindi frá í gærkvöldi. Haft er eftir vitnum í dagbók lögreglu að unglingar hafi kveikt í bifreiðinni. Málið er í rannsókn.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fleiri fréttir Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum Sjá meira