Salah og Firmino í eldlínunni í sigri Liverpool en Arsenal gerði jafntefli í Frakklandi Anton Ingi Leifsson skrifar 31. júlí 2019 19:18 Liverpool fagnar marki í kvöld. vísir/getty
Liverpool vann 3-1 sigur á Lyon er liðin mættust á Stade de Genéve leikvanginum í Sviss í dag en þetta var síðasti leikur Liverpool áður en alvaran hefst á Englandi. Evrópumeistararnir stilltu upp blönduðu liði í kvöld en í bland við öfluga leikmenn á borð við Mohamed Salah og Roberto Firmino fengu ungir leikmenn tækifæri.Reds line up @OL... #LFCPreSeasonhttps://t.co/CgtVNNUCYb — Liverpool FC (@LFC) July 31, 2019 Það byrjaði ekki vel fyrir Liverpool því á fjórðu mínútu fékk Lyon vítaspyrnu sem Memphis Depay skoraði úr. Roberto Firmino jafnaði hins vegar metin þrettán mínútum síðar. Liverpool komst svo yfir á 21. mínútu er Daninn Joachim Andersen sem gekk í raðir Lyon í sumar skoraði sjálfsmark. Staðan 2-1 í hálfleik en þriðja og síðasta mark Liverpool skoraði hinn ungi Harry Wilson. Liðið mætir Manchester City um næstu helgi í leiknum um Samfélagaskjöldinn.A great way to end #LFCPreSeason Thank you for your brilliant support, as always, Reds pic.twitter.com/EUtOLp9gq0 — Liverpool FC (@LFC) July 31, 2019 Arsenal gerði 1-1 jafntefli við Angers er liðin mættust í Frakklandi. Angers komst yfir í fyrri hálfleik en í upphafi síðari hálfleiks jafnaði Reiss Nelson metin. Arsenal hafði svo betur í vítaspyrnukeppni.Uppfært: Í fyrstu var sagt frá því að sigurinn hafi verið fyrsti sigur Liverpool síðan í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Beðist er afsökunar á þessum mistökum.
Enski boltinn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport Fleiri fréttir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Sjá meira