Áfram ágæt veiði í Þjórsá Karl Lúðvíksson skrifar 1. ágúst 2019 09:00 Flottur lax úr Urriðafoss B - Þjótandi Mynd: Iceland Outfitters FB
Veiðin í Þjórsáhefur verið ágæt á þessu sumri þó hún sé minni en síðustu tvö árin en nýju veiðisvæðin virðst vera að koma vel inn. Fyrir ofan Urriðafoss er mikið ókannað veiðisvæði sem hefur verið selt ódýrt til þeirra veiðimanna sem vilja kanna nýja möguleika í veiði. Svæðið sem undirritaður hefur einmitt prófar er kallað Urriðafoss B - Þjótandi og það svæði hefur upp á mikla skemmtun að bjóða. Á Facebooksíðu Iceland Outfitters er einmitt smá frásögn frá veiðimönnum sem voru þar við veiðar og gekk greinilega mjög vel.„Fórum í Urriðafoss B í gær en dagurinn var lyginni líkastur. Við vorum mættir um kl. 8 og fórum beint á veiðistaðinn Sandholt. Í fyrsta rennsli BÆNG – fékk ég 56 cm hrygnu. Stuttu seinna, kom annar fiskur, 65 cm hængur. Þetta gerðist allt fyrir kl. 9:00. Við fórum svo á aðra staði og þar var lítið að frétta.Eftir pásuna fórum við aftur í Sandholtið, þá fóru hlutirnir virkilega að gerast. Fengum slatta af góðum tökum og rétt fyrir kl. 17:00 landaði Styrmir veiðifélagi minn, 77 cm hæng. Tökurnar héldu áfram en við ákváðum að hvíla staðinn. Svo þegar við byrjum aftur um kl. 20, náði Styrmir öðrum hæng, 59 cm. Svo í síðasta kasti kl. 21:59 negldi ég 61 cm hæng á þýska snældu. Allir hinir komu á Skógá Blá. Við misstum í heildina 8 laxa en þetta var einstakur veiðidagur og lax að sýna sig útum allt.“
Mest lesið Langá loksins að fá stóru göngurnar? Veiði Stórlaxar síðustu daga Veiði Sjáðu laxana í teljaranum í Búðarfossi Veiði 42 laxar í opnun á Stóru Laxá svæði 4 Veiði Fyrsti laxinn á land í Ytri Rangá Veiði Fyrsti laxinn úr Vatnsdalsá af silungasvæðinu Veiði Varar við áætlunum um virkjanir í Þjórsá Veiði Rólegt í Dölunum Veiði Gott skot í Kjósinni Veiði Sífellt fleiri konur við árbakkann Veiði