Ekkert lið minna með boltann í umferðinni en HK í stórsigrinum á KR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2019 16:00 Ásgeir Marteinsson og félagar nýttu færin sín vel á móti KR. Vísir/Bára
HK-ingar þurftu ekki að vera mikið með boltann þegar þeir unnu 4-1 stórsigur á toppliði KR í sextándu umferð Pepsi Max deildar karla í fótbolta. HK-liðið var aðeins með boltann í 19 mínútur og 25 sekúndur í leik liðanna í Kórnum samkvæmt úttekt Instat eða minna en öll hin ellefu lið deildarinnar í þessari umferð. HK var með boltann í 34,6 prósent leiktímans en KR var á móti með boltann í 65,4 prósent leiktímans eða samtals í 36 mínútur og 44 sekúndur. HK-liðið nýtti færin vel í leiknum eða 80 prósent samkvæmt Instat en liðið skoraði úr 4 af 5 færum. KR-ingar nýttu aðeins 1 af 4 færum sínum. Öll sjö skot HK-inga í leiknum fóru á markið en aðeins 5 af 11 skotum KR-inga. KR fékk langflest horn í umferðinni eða þrettán. Það eru þremur meira en næstu lið og ellefu hornum meira en HK fékk. HK-ingar voru hins vegar oftast rangstæðir eða fimm sinnum. HK átti líka langfæstar sendingar í umferðinni en 197 af 296 sendingum HK-inga í leiknum heppnuðust sem gerir 67 prósent. KR-ingar reyndu 608 sendingar í leiknum og 497 þeirra heppnuðust eða 82 prósent. KR var því með 300 fleiri heppnaðar sendingar en HK í leiknum þrátt fyrir þetta stóra tap.Lið sem voru mest með boltann í 16. umferð Pepsi Max deild karla 2019:(Tölur frá Instat) 1. Víkingur 39 mínútur: 33 sekúndur 2. Grindavík 37:08 3. KR 36:44 4. Valur 33:27 5. Breiðablik 27:13 6. Fylkir 24:15 7. KA 23:52 8. Stjarnan 23:40 9. FH 23:30 10. ÍBV 20:07 11. ÍA 19:42 12. HK 19:25
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings