Þingflokkurinn geti ekki „hlaupið til“ eftir því hvernig „einhver skoðanakönnun innan Sjálfstæðisflokksins kemur út“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 12. ágúst 2019 12:04 Sigríður Andersen segir að ekki sé ástæða til að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þriðja orkupakkann. Vísir/Vilhelm
Sigríður Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir að undirskriftasöfnun flokksbundinna Sjálfstæðismanna til höfuðs þriðja orkupakkanum hafi komið upp á síðustu stundu. Flokksmenn velti nú fyrir sér hvað eigi síðan að gera við undirskriftalistann því þingmenn séu einungis bundnir af sannfæringu sinni í því fulltrúalýðræði sem við lýði er. Sigríður var gestur í útvarpsþættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun og ræddi um þriðja orkupakkann. Málið reynist nú Sjálfstæðisflokknum flókið því nokkrir félagsmenn hafa hrundið af stað undirskriftasöfnun þar sem hvatt er til þess að efnt verði til atkvæðagreiðslu um þriðja orkupakkann innan Sjálfstæðisflokksins. Sjá nánar: Sjálfstæðismenn safna undiskriftum „Nú er þetta nýtt fyrirbæri í skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins og menn hafa verið að velta fyrir sér hvernig þetta virki svona í reynd, hvernig er hægt að safna svona nöfnum og hvað eigi síðan að gera við það. Af því að það liggur auðvitað alveg fyrir að þingmenn geta ekki bara hlaupið til eftir því hvernig einhver skoðanakönnun innan Sjálfstæðisflokksins kemur út. Það er ekki þannig. Menn þekkja nú þessa umræðu. Þingmenn eru auðvitað bara bundnir af sannfæringu sinni.“ Stjórnmálamenn þurfi að vera trúir sannfæringu sinni. „Ég segi nú alltaf, það er alltaf þægilegast að vera svoleiðis stjórnmálamaður að hlusta bara á sjálfan sig og taka tillit til eigin samvisku í þessum málum en ekki skipta um skoðun eða sveiflast eins og lauf í vindi eftir hvernig vindar blása á hverjum tíma. Hitt er annað mál og hugsunin að sjálfu sér á bak við þessar breytingar á skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins hafa trúlega verið einmitt þær að efla kannski einhverja aðkomu almennra flokksmanna að stefnumótun á milli landsfunda. En það er samt sem áður þannig að stefna Sjálfstæðisflokksins er mótuð á landsfundi svona heilt yfir.“ Sigríður varð spurð hvort ákvarðanir um auðlindir Íslands ættu ekki að vera í höndum Þjóðarinnar og hvort til greina kæmi að þjóðin fengi að kjósa um lagningu sæstrengs. „Að mínu mati, ekki frekar en aðrar stórar ákvarðanir. Við erum hérna með fulltrúalýðræði og ef við ætlum að skipta – og það kann að vera að það sé alveg frábært kerfi […] að vera með kosningar um allt og ekkert, það getur vel verið að það sé en við erum ekki með þannig kerfi og ég tel ekki til farsældar fallið að hafa bæði kerfi þar sem er fulltrúalýðræði það sem fólk fær greitt til að setja sig inn í hlutina […] og hitt líka að allur almenningur þurfi að vera í þessu máli,“ sagði Sigríður. Hún sagði að ástæðan fyrir því að hún væri almennt á móti þjóðaratkvæðagreiðslum um svona mál sé sú að erfitt væri að ákvarða hvar ætti að draga línuna. „Ætlum við að kjósa til dæmis um það hvort við ætlum að leyfa frjálsan útflutning á fiski? Af hverju ættum við að stoppa þar? Það eru önnur mál sem eru stærri. Mér finnst þetta nokkuð mikið smámál.“ Bjarni Benediktsson sagði á opnum fundi í Valhöll um helgina að mikil tækifæri væru fólgin í nýjum skipulagsreglum flokksins. Í viðtalinu var Sigríður spurð út í orð Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, sem hann lét falla í kvöldfréttum eftir opinn fund í Valhöll á laugardag sem einhverjir túlkuðu sem svo að flokksforystan virti vilja flokksmanna að vettugi. „Það var nú þvert á móti annað sem kom fram í máli formannsins á fundinum. Hann tók auðvitað fram það sem ég tek auðvitað heilshugar undir og við öll þingmenn flokksins, að sjálfsögðu og í rauninni auðvitað allir ættu að gera sem standa í stjórnmálum í rauninni í sama hvaða flokki þeir eru, að þessi umræða er auðvitað mjög mikilvæg og á hana er auðvitað hlustað og það er ekki eins og menn hafi skeytt engu í tengslum við þessa umræðu heldur einmitt látið hana skipta máli.“ Í ræðu sinni á fundinum í Valhöll sagði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, að tækifæri væru í nýjum skipulagsreglum flokksins. „Að sjálfsögðu gerum við okkur grein fyrir því ef flokksforystan, þingflokkurinn, forystumenn kjördæma, þingmenn og aðrir lenda upp á kant við hinn almenna vilja flokksmanna þarf ekkert að spyrja að leikslokum. Það eru þá ekki hinir kjörnu fulltrúar sem hafa yfirhöndina að minnsta kosti ekki nema í mjög skamman tíma.“ Helga Vala Helgadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, velti fyrir sér hvort leiksýning væri í gangi.vísir/vilhelm Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, brást við viðtalinu við Sigríði í morgun og sagðist halda að atkvæðagreiðslan væri sýning. „Andstæðingar O3 virðast vera að safna undirskriftum 5000 flokksmanna, telja hana verða búna á næstu tveimur vikum. Ef það tekst á miðstjórn flokksins að koma saman, og fara í allsherjaratkvæðagreiðslu innan flokksins. Þá verður málinu hins vegar löngu lokið á Alþingi svo maður veltir óneitanlega fyrir sér hvort þetta sé allt eitt stórt leikhús hjá þeim til að láta líta út fyrir að þetta sé eitthvað til umræðu hjá stjórn flokksins.“ Sigríður sagðist ekki hafa neinar áhyggjur af því að hér yrði lagður sæstrengur á næstu árum. „En ég velti því fyrir mér hins vegar og það er umræða sem við ættum að taka til dæmis í framhaldi og undir liðnum orkustefna stjórnvalda, ástæðan fyrir því að það er ekki möguleiki að vera með sæstreng því orkuverðið er svo hátt í Evrópu að það myndi aldrei borga sig að tappa af rafmagn til Evrópu, það myndi ekki svara kostnaði að leggja strenginn. En segjum að það breytist. Væru menn virkilega þá á móti því að fá aukatekjur inn í ríkissjóð með því að selja þangað rafmagn? Við eigum alveg eftir að taka þá umræðu.“ Bjarni sagði um helgina að innan skamms yrði tilkynnt hver yrði næsti dómsmálaráðherra. Hann sagði að Sigríður ætti afturkvæmt í ríkisstjórnina en vildi þó ekki segja hver yrði skipaður. Sigríður var í viðtalinu spurð hvort hún yrði skipuð dómsmálaráðherra. „Ja, við sjáum til með það.“Í spilaranum hér að neðan er hægt að hlusta á viðtalið við Sigríði Andersen sem fjallaði vítt og breitt um orkumál.
Alþingi Bítið Landsréttarmálið Sjálfstæðisflokkurinn Þriðji orkupakkinn Tengdar fréttir Sjálfstæðismenn safna undirskriftum gegn 3. orkupakkanum Með framtakinu nýtir Jón Kári sér 6. grein skipulagsreglna flokksins sem kveður á um að miðstjórn Sjálfstæðisflokksins skuli boða til atkvæðagreiðslu ef að minnsta kosti fimm þúsund flokksbundnir félagar óska eftir því. 6. ágúst 2019 11:47 Telur þriðja orkupakkann brenna heitar á landsbyggðinni Opinn fundur hófst í Valhöll í morgun þar sem Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins ræðir stjórnmálaviðhorfið og aðrir þingmenn sitja fyrir svörum. 10. ágúst 2019 13:00 Fullt út úr dyrum í Valhöll Fullt er út úr dyrum í Valhöll en klukkan ellefu hófst þar fundur þar sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir stjórnmálaviðhorfið og situr hann ásamt öðrum þingmönnum fyrir svörum. 10. ágúst 2019 12:24 Mest lesið Björk styður æskuvinkonu sína sem sætir svívirðingum Innlent Magga Stína handtekin í nótt af Ísraelsher Innlent Langþreyttur á TikTok áreiti og rasískum orðsendingum skólakrakka Innlent Bein útsending: Mótmæla handtöku Möggu Stínu Innlent Óheppileg „læk“ Reykjavíkurborgar: „Okkur þykir þetta miður“ Innlent Hefur áhyggjur af unga fólkinu Innlent Dularfull brotlending nærri Area 51 Erlent Átján sagt upp í Seljahlíð Innlent Keyrt á vegfaranda í Skeifunni Innlent Takmörk á því hversu langt Ísraelar geti farið til að verja hafnbann Innlent Fleiri fréttir Útlendingastofnun: Ekkert bendi til ómannúðlegrar meðferðar í Króatíu Hitnar undir feldi Lilju Játaði að hafa stolið tugum milljóna úr dánarbúi móður sinnar Játaði áralangt kynferðisofbeldi gegn stjúpdóttur sinni Bein útsending: Mótmæla handtöku Möggu Stínu Fékk aðsvif og missti bílinn yfir á annan vegarhelming Hefur áhyggjur af unga fólkinu Ungir Sjálfstæðismenn vilja stöðva hælisveitingar Sér fram á margar klukkustundir í fullkominni óvissu Takmörk á því hversu langt Ísraelar geti farið til að verja hafnbann Keyrt á vegfaranda í Skeifunni Óheppileg „læk“ Reykjavíkurborgar: „Okkur þykir þetta miður“ Hafa rætt við ísraelsk stjórnvöld og sett fram kröfur vegna Margrétar Björk styður æskuvinkonu sína sem sætir svívirðingum „Minnir á saltveðrið mikla“ Magga Stína tekin höndum og gular viðvaranir í kortunum Stúlkan komin í leitirnar Bændum verulega brugðið vegna breytinga á búvörulögum Ákærður fyrir stunguárás á Seltjarnarnesi Magga Stína handtekin í nótt af Ísraelsher Átján sagt upp í Seljahlíð Fyrri degi heimsóknar lauk með kvöldverði í forsetahöllinni Sást blóðugur fyrir utan fjölbýlishús Langþreyttur á TikTok áreiti og rasískum orðsendingum skólakrakka „Það er sárt að þurfa að horfa á eftir þeim“ Ekki hlutverk stjórnarandstöðunnar að halda uppi stemmingu Segir réttast að ráðherra dragi drögin í heild sinni til baka Spyr hvort aflífa þurfi sig vegna mjaðmaskipta Þungt símtal bónda í Skagafirði Lögregla lýsir eftir fimmtán ára stúlku Sjá meira
Sjálfstæðismenn safna undirskriftum gegn 3. orkupakkanum Með framtakinu nýtir Jón Kári sér 6. grein skipulagsreglna flokksins sem kveður á um að miðstjórn Sjálfstæðisflokksins skuli boða til atkvæðagreiðslu ef að minnsta kosti fimm þúsund flokksbundnir félagar óska eftir því. 6. ágúst 2019 11:47
Telur þriðja orkupakkann brenna heitar á landsbyggðinni Opinn fundur hófst í Valhöll í morgun þar sem Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins ræðir stjórnmálaviðhorfið og aðrir þingmenn sitja fyrir svörum. 10. ágúst 2019 13:00
Fullt út úr dyrum í Valhöll Fullt er út úr dyrum í Valhöll en klukkan ellefu hófst þar fundur þar sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir stjórnmálaviðhorfið og situr hann ásamt öðrum þingmönnum fyrir svörum. 10. ágúst 2019 12:24